Fréttir

Vestra liðin um helgina.

Knattspyrna | 19.06.2026

Það verður nóg um að vera hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar Vestra um helgina.

Drengir og stúlkur fædd 2018-2019(7. flokkur) fara á hið árlega Norðurálsmót á Akranesi. Mótið hefst í dag og stendur fram á sunnudag.

Stúlkur fæddar 2016-2017(6.flokkur) taka þátt í árlegu Króksmóti á Sauðárkróki laugardag og sunndag.

4. flokkur drengja leikur tvo leiki í Íslandsmótinu fyrir sunnan. Annarsvegar gegn Uppsveitum á Laugarvatni á morgun laugardag, og hinsvegar gegn Fjölni í Grafarvogi á sunnudaginn.

3 og 4.flokkur stúlkna leikur á heimavelli í Íslandsmótinu og morgun laugardag. Stúlkurnar taka á móti Víking Reykjavík og fer leikurinn fram kl. 16.00 á Kerecisvellinum.

Á morgun laugardag leika svo 2. flokks leikmenn Vestra með Harðarmönnum gegn liði Afríku í 5. deild karla. Leikurinn fer fram á heimavelli Þróttar í Reykjavík og hefst kl. 13.00.

Við minnum svo á heimaleiki meistaraflokka Vestra á Kerecisvellinum um helgina. Meistaraflokkur kvenna tekur á móti KFR kl. 14.00 á morgun laugardag í 2. deild kvenna, og meistaraflokkur karla tekur á móti Aftureldingu kl. 14.00 á sunnudaginn í Lengjudeild karla.

ÁFRAM VESTRI ⚽️

Deila