Fréttir

Aðalfundur KFÍ 2016

Körfubolti | 02.05.2016

Aðalfundur KFÍ 2016 verður haldinn fimmtudaginn 12. maí. Fundurinn fer fram í fundarsal Þróunarseturs (Háskólaseturs), Suðurgötu 12, Ísafirði og hefst kl 18.00 (A.t.h. breyttur fundarstaður). Fundurinn markar tímamót því hann verður síðasti aðalfundur KFÍ og jafnframt fyrsti aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Vestra. Að loknum fundarstörfum verður þessum tímamótum fagnað.

Á dagskrá fundarins verða aðalfundarstörf eins og kveðið er á um í 7. gr. laga félagsins:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
  4. Kosning formanns til eins árs.
  5. Kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára.
  6. Kosning þriggja manna í varastjórn til eins árs.
  7. Kosning tveggja endurskoðenda.
  8. Kosning nefnda.
  9. Lagabreytingar.
  10. a) Tillaga um að staðfesta þátttöku Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar í fjölgreinafélaginu Vestra
  11. b) Tillaga að reglugerð fyrir Körfuknattleiksdeild Vestra kynnt og lögð fram til samþykktar
  12. Önnur mál.

Allir þeir sem koma að starfsemi félagsins jafnt iðkendur sem sjálfboðaliðar, foreldrar iðkenda og fylgismenn eru hvattir til að mæta á fundinn. 

8. gr. Atkvæðisréttur og kjörgengi.

Rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn.

Rétt til kjörgengis í stjórn eiga þeir félagar sem eru orðnir 18 ára.

Deila