Fréttir

Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar 2020

Körfubolti | 26.05.2020

Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Vestra 2020 verður haldinn þriðjudaginn 2. júní. Fundurinn fer fram í Vallarhúsinu á Torfnesi og hefst kl. 18:00. Allir þeir sem koma að starfsemi Körfuknattleiksdeildarinnar, jafnt iðkendur sem sjálfboðaliðar, foreldrar iðkenda og fylgjendur eru hvattir til að mæta á fundinn. Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð um Körfuknattleiksdeild.

Deila