Fréttir

Eva Margrét Kristjánsdóttir íþróttamaður KFÍ 2012

Körfubolti | 10.01.2013
Eva Margrét er flott stúlka
Eva Margrét er flott stúlka

Eva Margrét Kristjánsdóttir er ein af efnilegustu körfuboltaiðkendum á landinu og afrekaskrá hennar nú þegar orðin eftirtektarverð þrátt fyrir ungan aldur.  Með KFÍ er hún lykilmaður í stúlknaflokki (16-17) ára ásamt því að spila stórt hlutverk í meistaraflokki kvenna í 1. deild en þar er hún með 19 stig, 9 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 varin skot að meðaltali í leik. 

 

Á síðasta ári lék hún fimm landsleiki með U15 landsliði Íslands skoraði 32 stig í þeim leikjum en alls hefur hún leikið 10 leiki fyrir U15 landsliðið. Eva var einnig lykilleikmaður í stúlknaflokki og meistaraflokki KFÍ sem náði 2. sæti í 1. deild kvenna og lék til úrslita um sæti í Dominos-deild kvenna þar sem hún var með 10 stig, 2 stoðsendingar og 2 varin skot að meðaltali í leik. Eva er  einnig í landsliðshóp U16 landslið Íslands sem tekur þátt í Norðurlandamóti á vegum KKÍ.

 

Eva Margrét er afreksíþróttamaður sem leggur mikinn metnað í að æfa sem slíkur og tekur allar aukaæfingar sem bjóðast innan sem utan keppnistímabils og það er að skila sér þar sem hún er ein af lykilmönnum meistaraflokks KFÍ og er mikil fyrirmynd.  

 

Það var auðvelt að velja Evu íþróttamann KFÍ 2012 og er hún vel að þessum titli komin. 

 

Áfram KFÍ

Deila