Fréttir

Fjölmennt og vel heppnað Hamraborgarmót

Körfubolti | 24.01.2017
Yngri hópurinn af kátum körfuboltakrökkum sem tók virkilega á því á Hamraborgarmótinu undir vaskri stjórn meistaraflokksmanna.
Yngri hópurinn af kátum körfuboltakrökkum sem tók virkilega á því á Hamraborgarmótinu undir vaskri stjórn meistaraflokksmanna.
1 af 2

Hátt í 80 krakkar í 1.-6. bekk létu ljós sitt skína á fyrsta Hamraborgarmótinu sem Kkd. Vestri stóð fyrir á Torfnesi í gær. Mótið var boðsmót meistaraflokks karla og Hamraborgar en meistaraflokkur sá um allt skipulag undir stjórn Yngva Gunnlaugssonar yfirþjálfara og gerðu það með stakri prýði. Hamraborg bauð síðan allri hersingunni í glæsilega pizzuveislu í mótslok. Er það von barna- og unglingaráðs Kkd. Vestra að mótið sé komið til að vera sem fastur liður í fjölbreyttri vetrardagskrá deildarinnar.

Mótshaldið er liður í því að undirbúa yngstu iðkendur félagsins fyrir stóra Nettómótið sem fram fer í Reykjanesbæ í byrjun mars en það er stærsta körfuboltamót landsins. Löng hefð er fyrir þátttöku körfuboltabarna af norðanverðum Vestfjörðum á því móti og árið í ár verður þar engin undantekning en mótið er ætlað börnum í 1.-5. bekk. Margt körfuboltafólk hefur stigið sín fyrstu keppnisskref á því móti.

Deila