Fréttir

Ísafjarðartröllið snýr heim!

Körfubolti | 20.08.2023

KKD Vestra hefur samið við Sigurð Gunnar Þorsteinsson um að leika með liðinu á næsta ári. Hann kemur til okkar eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn með Tindastóli á síðasta tímabili. Þar áður hafði hann átt glæsilegan feril á Íslandi og sem atvinnumaður erlendis. Hann hefur t.a.m. orðið Íslandsmeistari með Keflavík, tvívegis Íslandsmeistari með Grindavík, bikarmeistari með Grindavík og svo þessi nýjasti Íslandsmeistara titill með Tindastóli.

Hann hefur einnig leikið erlendis í Grikklandi og Svíþjóð. Til viðbótar við fyrrgreind lið þá hefur hann einnig spilað fyrir ÍR og Hött á Íslandi. Þá hefur Sigurður einnig leikið með landsliði Íslands.

Sigurður og fjölskyldan hans ætla að flytjast búferlum og hafa hug á að setjast að á Ísafirði um óákveðinn tíma. Þetta er því mikill happafengur fyrir KKD Vestra. Sigurður verður mikilvægur reynslubolti fyrir okkar yngri leikmenn, enda Sigurður 35 ára og hokinn af reynslu.

Það er von stjórnar að þetta geti orðið mikilvægur þáttur í að efla starf deildarinnar til skemmri og lengri tíma. Lögð er áfram áhersla á að leyfa uppöldum leikmönnum liðsins að mynda kjarna liðsins og er það því ánægjulegt að fá svona brottfluttan meistara og heimamann aftur heim.

Deila