Fréttir

Jóhann Jakob og Björgvin Snævar semja við KFÍ

Körfubolti | 10.09.2013
Jói með Sævari formanni og Bigga þjálfara
Jói með Sævari formanni og Bigga þjálfara
1 af 2

Tveir drengir skrifuðu undir samning við KFÍ fyrir leik hér heima gegn Stjörnunni og erum við kát með þann gjörning. Báðir þessir strákar eru ´94 model og er Jóhann 202 cm á hæð og Björgvin 194 cm.

 

Það er greinilegt að Birgir Örn þjálfari ætlar sér að láta strákana spila í vetur og hafa hlutverk, en báðir þessir strákar hafa komið við sögu í tveim fyrstu leikjum okkar í Lengjubikarnum og til gamans má segja að tíu af tólf leikmönnum okkar settu stig í síðasta leik.

 

Við bjóðum strákana velkomna til okkar og ætlumst til mikils af þeim sem og þeim sem klæðast búning félagsins.

 

Áfram KFÍ

Deila