Fréttir

KFÍ, Ísfólkið og Palli bjóða börnum í smá hitting

Körfubolti | 11.03.2011
Palli er eðaldrengur
Palli er eðaldrengur
KFÍ, Ísfólkið og Páll Óskar ætla að bjóða krökkum í Ísafjarðarbæ í smátónleika á morgun laugardag 12. mars  í Krúsinni frá kl. 15-16.30. Palli mun syngja sín vinsælustu lög fyrsta hálftímann og síðan mun hann árita plaköt og stilla sér upp í myndatöku með krökkum sem það vilja. Húsið opnar 14.45.  Þetta mun fara fram í Krúsinni (muna það)

Það kostar ekkert inn og hvetjum við foreldrana að koma með krökkunum sínum og syngja með.

Við viljum þakka Palla og Ísfólkinu kærlega fyrir þetta frábæra boð. Deila