Fréttir

KFÍ og Íslandsbanki skrifa undir nýjan samning

Körfubolti | 09.05.2011
Sævar Óskarsson, Guðný Guðnadóttir og Guðni Guðnason við undirritun samningsins.
Sævar Óskarsson, Guðný Guðnadóttir og Guðni Guðnason við undirritun samningsins.

Þær gleðifréttir bárust heimasíðunni í dag að Íslandsbanki hafði endurnýjað samning við KFÍ og heldur því áfram að vera einn af okkar stærstu styrktaraðilum. Íslandsbanki hefur verið ötull stuðningsaðili KFÍ í gegn um árin og hefur samstarfið gengið einkar vel fyrir sig. Íslandbanki hefur alltaf lagt áherslu á að félagið standi sig í yngri flokka þjálfun og er enginn breyting þar á nú. Við ætlum okkur að halda áfram að byggja á þeim góða grunni sem nú er til staðar. Við viljum skila góðum þökkum til forráðamanna og kvenna sem gerðu þennan samning að veruleika.

Áfram KFÍ

Deila