Í dag var skrifað undir samning Sjúkraþjálfun Vestjarða og KFí um samstarf. SV mun sjá um umönnun á íþróttafólki okkar og vera okkur stoð og stytta á leikjum ásamt því að setja faglega þekkingu í alla þætti starfs okkar er lítur að þjálfun og eftirfylgni á meiðslum fólks okkar.
Það er ómetanlegt að hafa svona fólk með okkur. Mikið álag er á skrokkum og töluverð meiðsli eru fylgifiskur íþrótta. Ekkert er betra en að hafa fólk á bak við starfið sem metur og ráðleggur félagi hvernig á að fyrirbyggja meiðsl, byggja upp og styrkja líkamann.
Það er mikil gleði í herbúðum okkar með þennan samning, en hjá Sjúkraþjálfun Vestfjarða er einvalalið að störfum og hafa tveir Ísfriðingar nýlega flutt heim á ný og hafið hér störf. Það eru þeir Atli Jakobsson og Tómas Emil Guðmundson Hansen. Ólafur Halldórsson er aðalmaður SF og hefur verið okkur innan handa í mörg ár.
Sjúkraþjálfun Vestfjarða er ríkulega tækjum búin í alla staði. Stofan hefur að geyma, ásamt hefðbundum tækjum til sjúkraþjálfunar, fullbúinn tækjasal sem gefur frábæra möguleika til þjálfunar. Við skorum á þá sem ekki þekkja til að kynna sér starfsemi þeirra.
Deila