Fréttir

Kátt í Höllinni á helginni!

Körfubolti | 10.02.2017
Strákarnir í 9. flokki eru klárir í slaginn!
Strákarnir í 9. flokki eru klárir í slaginn!
1 af 2

Níundi flokkur drengja hjá Vestra tryggðu sér á dögunum leik um bikarmeistaratitil KKÍ með frækilegum sigri á Fjölni á útivelli. Á sunnudaginn kemur, þann 12. febrúar, rennur stóra stundin upp þegar liðið mætir Valsmönnum í úrslitaleiknum. Leikurinn hefst klukkan 9:45 og fer að sjálfsögðu fram í Laugardalshöllinni. Við hvetjum alla stuðningsmenn Vestra sem staddir eru í borginni til að mæta í Höllina og styðja strákana. Það þarf þó enginn að missa af leiknum því hann verður sýndur í beinni útsendingu á RUV.IS.

Níundi flokkur er yngsti aldursflokkurinn sem tekur þátt í bikarkeppni KKÍ. Leikurinn er því frumraun leikmanna beggja liða á stóra sviðinu og verður dýrmæt reynsla fyrir alla þátttakendur. Yngvi Páll Gunnlaugsson þjálfari piltanna er þó enginn nýgræðingur þegar kemur að bikarúrslitaleikjum. Hann hefur bæði stýrt meistaraflokki kvenna og yngri flokkum til sigurs í úrslitum, fyrir utan að eiga að baki fjölda Íslandsmeistaratitla með yngri flokkum og meistaraflokkum. Reynslubrunnur Yngva mun því án efa koma liðinu vel á sunnudag þegar á hólminn er komið.

Það er nokkuð síðan Ísfirðingar áttu síðast fulltrúa í Höllinn á bikarhelgi KKÍ. Flestir körfuboltaáhugamenn muna þó eftir bikarævintýrinu árið 1998 þegar meistaraflokkur karla lék gegn Grindavík. Þá settu Vestfirðingar svip sinn á Höllina og var áhorfendamet bikarúrslitaleiksins slegið rækilega. Yngri flokkar KFÍ og meistaraflokkar hafa síðan þá komist í undanúrslit nokkrum sinnum bæði í karla og kvennaflokkum án þess að ná að endurtaka leikinn frá því 1998. Það er því fagnaðarefni að eig loks aftur lið úrslitum og vonandi að strákarnir taki skrefið alla leið og tryggi sér titilinn sem jafnframt yrði fyrsti titill liðs á vegum íþróttafélagsins Vestra.

Liðið Vestra á sunnudag skipa þeir Blessed Parilla, Egill Fjölnisson, Friðrik Vignisson frá Hólmavík, James Parilla, Hilmir og Hugi Hallgrímssynir og Oddfreyr Ágúst Atlason.

Þjálfari liðsins er sem fyrr segir Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Kkd. Vestra en aðstoðarþjálfari hans í leiknum verður Nökkvi Harðarson þjálfari hjá Vestra.

Deila