Fréttir

Ken-Jah Bosley endurnýjar

Körfubolti | 04.08.2021
KJ var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér sæti í úrvalsdeild í júní.
KJ var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér sæti í úrvalsdeild í júní.

Bandaríski bakvörðurinn Ken-Jah Bosley hefur endurnýjað samning sinn við Vestra og leikur því með liðinu í úrvalsdeildi á komandi tímabili. Bosley var lykilmaður í liði Vestra sem tryggði sér sæti í efstu deild í júní síðastliðnum. Hann var með 23,1 stig, 5,1 stoðsendingu og 6 fráköst að meðaltali og 21,4 framlagspunkta.

KJ Bosley er fjölhæfur bakvörður sem getur bæði spilað stöðu skotbakvarðar og leikstjórnanda. Eins og stuðningsfólk Vestra þekkir er KJ mikill liðsmaður, ósérhlýfinn og drífandi. Á síðasta tímabili stóð hann sig frábærlega með Vestra og gaf sig allan í verkefnið, þrátt fyrir veikindi og olnbogameiðsl.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Vestra hlakkar til áframhaldandi samstarfs við KJ á komandi tímabili og hlakkar til að sjá hann spreyta sig á stærra sviði í úrvalsdeild.

Hér er ein eftirminnileg karfa frá kappanum síðasta vetur:

Deila