Fréttir

Nebojsa semur við Vestra

Körfubolti | 08.09.2016
Nebojsa á siglingunni með KFÍ á síðasta tímabili.
Nebojsa á siglingunni með KFÍ á síðasta tímabili.

Serbneski framherjinn Nebojsa Knezevic hefur samið við Vestra á nýjan leik. Nebó lék með KFÍ í úrvalsdeildinni tímabilið 2010-2011 og sneri svo aftur vestur á Ísafjörð haustið 2014 og hefur leikið með liðinu síðan. Nebó er því orðinn sannkallaður heimamaður sem hefur skilað góðu starfi til körfuboltans á Ísafirði, bæði sem leikmaður og þjálfari yngri flokka. Það er mikið fagnaðarefni fyrir körfuknattleiksdeild Vestra að fá að njóta krafta þessa fjölhæfa leikmanns á komandi tímabili.

Nebó var einn besti leikmaður 1. deildarinnar í fyrra með 18,7 stig, 6,7 fráköst og 3,1 stoðsendingu í leik.

Það verður gaman að fylgjast með honum á parketinu á Jakanum á næstunni.  Stjórn KKD Vestra hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Nebó.

Deila