Fréttir

Öruggur sigur hjá sjöunda flokki stúlkna í C-riðli

Körfubolti | 10.05.2016
Sjöundi flokkur stúlkna fékk þann heiður að vera síðasta liðið til að leika undir merkjum KFÍ.
Sjöundi flokkur stúlkna fékk þann heiður að vera síðasta liðið til að leika undir merkjum KFÍ.
1 af 2

Um helgina kepptu stúlkurnar í 7. Flokki á síðasta móti vetrarins í C-riðli Íslansmótsins. Stelpurnar fengu þann heiður að vera síðasta liðið til að spila undir merkjum KFÍ en á næsta keppnistímabili verður leikið undir merkjum Vestra. Keppt var í Rimaskóla í Grafarvogi og áttu stelpunar tvo leiki á laugardegi og tvo á sunnudegi.

Fyrsti leikur var á gegn gestgjöfunum í Fjölni. KFÍ stúlkur hófu leikinn af miklum krafti með frábærri vörn og mjög flottri sókn og var staðan eftir fyrsta leikhluta 14-0 fyrir KFÍ. Sömu sögu var að segja um annan leikhluta og í hálfleik var staðan 19-0 KFÍ stúlkum í vil. Í þriðja leikhluta sofnuðu stelpurnar aðeins á verðinum þegar heimastúlkur náðu góðu áhlaupi en þar sem munirnn var þegar orðinn mikill kom það ekki að sök og var staðan eftir þriðja leikhluta 27-10 fyrir KFÍ. Lítið gerðist í fjórða leikhluta og endaði leikurin með öruggum sigri KFÍ 32-12.

Annar leikurinn gegn Grindavík var jafn og spennandi að mestu leyti en alltaf voru KFÍ stúlkur skrefi á undan. Leikurinn byrjaði með miklum látum og skoraði KFÍ sókn eftir sókn og komst í 10-0 en þá virtist koma lok á körfuna því þegar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum skoruðu KFÍ stúlkur aðeins 1 stig á móti 6 stigum frá Grindavík. Næstu tvo leikhluta gekk mjög erfiðlega að setja boltann í körfuna en KFÍ stúlkur héldu sér inn í leiknum með frábæri vörn. Staðan fyrir síðasta leikhluta var 13-12 fyrir KFÍ. Grindavik komst yfir í fyrsta sin í byrjun fjórða leikhluta en við það hrökk leikur KFÍ í gang með þremur körfum í röð. Auk þess söng þriggja stiga flautukarfa í netinu sem var samt dæmd af. Einhverjir áhorfendur voru þó á því að karfan hafi verið fullkomnlega lögleg en ekki þýðir að deila ivð dómarann og því var lokastaðan 19-14 fyrir KFÍ. Með þessum sigri voru stelpurnar komnar í mjög góða stöðu fyrir seinni daginn.

Þriðju leikurin var gegn Njarðvík á sunnudagsmorgni. KFÍ stúlkur byrjuðu af miklum krafti sem fyrr og eftir frábæran fyrsta leikhluta var staðan 12-0 KFÍ í vil. Annar leikhluti einkenndist af mikilli baráttu en jafnframt flottum körfubolta þar sem gott spil var í gangi hjá stelpunum. Staðan í hálfleik 18-6. Í þriðja leikhluta gáfu KFÍ stúlkur í og náðu að auka enn á forskotið og endaði leikhlutinn í stöðunni 25-8.  Í fjórða og síðasta leikhlutanum áttu Njarðvíkurstúlkur gott áhlaup en það kom of seint og því var þriðji sigur KFÍ stúlkna staðreynd og lokatölurnar 33-19.

Fjórði og síðasti leikurin var á gegn liði Breiðabliks. Fljótlega mátti sjá að KFÍ stúlkur höfðu mikla yfirburði enda leiddu þær allan leikinn. Leikurinn var frekar óspennandi og sigurinn auðveldur 29-12.

Með þessum 4 sigrum tryggðu KFÍ stúlkur sér sigur í riðlinum og sæti í B-riðli á næsta keppnistímabili. Helgin var í alla staði flott og voru stelpurnar til fyrirmyndar innan vallar sem utan. Þessi hópur hefur tekið miklum framförum í vetur undir stjórn Nökkva Harðarsonar þjálfara sem hefur stýrt liðinu af fagmennsku í vetur bæði á æfingum og í keppni. Það er ljóst að framtíðin er  björt í kvennakörfunni á Ísafirði ef þessar efnilegu stelpur halda áfram að æfa og bæta sig og ljóst að þær geta náð mjög langt í íþróttinni.

Deila