Fréttir

Sætir sigrar og súr töp

Körfubolti | 01.02.2018
Níundi flokkur stúlkna ásamt Yngva Gunnlaugssyni þjálfara unnu alla leiki sína í B-riðli og tryggðu sér því sæti í A-riðli í næstu umferð.
Níundi flokkur stúlkna ásamt Yngva Gunnlaugssyni þjálfara unnu alla leiki sína í B-riðli og tryggðu sér því sæti í A-riðli í næstu umferð.
1 af 3

Um liðna helgi var mikið um að vera hjá yngri flokkum Vestra því alls tóku þrír flokkar þátt í fjölliðamótum Íslandsmótsins. Minnibolti eldri stúlkna lék á Selfossi, 9. flokkur stúlkna spilaði í B-riðli í Hafnarfirði og 10. flokkur drengja í A-riðli í Reykjavík. Það skiptust á skin og skúrir eins og gengur hjá þessum flokkum en allt fer þetta í reynslubankann.

Sæti í A-riðli tryggt í Hafnarfirði

Níundi flokkur stúlkna lék í B-riðli á Ásvöllum í Hafnarfirði um nýliðna helgi en stelpurnar féllu úr A-riðli í síðustu umferð. Þær voru staðráðnar í að vinna sér sæti meðal þeirra bestu aftur og mættu afar ákveðnar til leiks.

Fyrsti leikur mótsins var um hádegisbilið á laugardag gegn sjálfum gestgjöfum mótsins Haukum. Vestra stelpur mættur vel stemmdar og ákveðnar til leiks. Sóknarleikur liðsins var með ágætum en einhver örlítill stirðleiki gerði það að verkum að opin sniðskot og víti rötuðu illa ofan í körfuna. Í þessum leik sannaðist sú gullvæga regla að góður varnarleikur skilar sigrum því þrátt fyrir slæma skotnýtingu höfðu stelpurnar yfirhöndina allt frá upphafi til loka. Varnarleikurinn var til algjörrar fyrirmyndar og í seinni hálfleik fóru opnu skotin og og vítin að detta niður og smátt og smátt jókst munurinn.  Lokatölur 58-20 fyrir Vestra. Allir leikmenn Vestra skoruðu í leiknum og stóðu sig með mikilli prýði. Atkvæðamest var Sædís Mjöll með 14 stig, næst kom Sara Emily með 13 stig, Katla María skoraði 10 stig, Helena 6 stig, Hera og Rakel 4 stig hvor, Snæfríður 3 stig og Gréta og Bríet 2 stig hvor.

Á sunnudagsmorgun mættu Vestra stúlkur svo Stjörnunni en Stjarnan hafði sigrað Snæfell á laugardeginum og því til alls líklegar. Framan af var leikurinn við Stjörnuna nokkuð jafn en þega líða tók á seinni hálfleik var ljóst að Vestra stelpur ætluðu ekki að gefa neitt eftir. Þær héldu uppteknum hætti frá deginum áður og spiluðu flotta vörn sem skilaði hraðaupphlaupum og auðveldum körfum. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hve vel allir leikmenn liðsins skiluðu varnarhlutverkinu en allir leikmenn liðsins mættu tilbúnir í verkefnið og skiluðu því af prýði. Lokatölur 37-62 Vestra í vil. Atkvæðamest í liði Vestra var Helena með 28 stig, næstar komu þær Katla, Rakel og Snæfríður með 8 stig hver, Sara skoraði 6 stig og Snæfríður 4.

Lokaleikur mótsins var leikur Vestra og Snæfells. Snæfells stúlkur mættu Stjörnunni í erfiðum leik áður, sem þær unnu, og fengu ekki hvíld á meðan Vestra stúlkur fengu að hvíla. En það er gömul saga og ný að Hólmarar gefast aldrei upp og Snæfells stúlkur mættur þreyttar en vel stemmdar í leikinn. Þjálfari liðsins, hin magnaða Kristen McCarthy, gerði afar vel í inn á skiptingum leikmanna og svo virtist sem Snæfellsstúlkur væru alltaf með ferskar fætur inn á gólfinu. Snæfell leiddi leikinn því lengi með litlum mun en enn á ný gerði frábær varnarleikur Vestra það að verkum að munurinn var aldrei mikill. Lokasekúndur leiksins voru æsispennandi. Þegar aðeins fjórar sekúndur voru eftir var Vestri einu stigi undir og átti innkast. Boltinn rataði til Helenu undir körfunni og brutu Snæfellsstúlkur strax á henni. Helena fór því á vítalínuna þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir. Fyrra vítið klikkaði og því var hið seinna eins mikilvægt og þau gerast. Helenu brást ekki bogalistinn í því og tryggði Vestra framlengingu. Í framlengingunni náðu Vestra stúlkur yfirhöndinni og gáfu ekkert eftir en Snæfellsstúlkur voru eðlilega orðnar nokkuð þreyttar. Lokatölur 48-52 fyrir Vestra.

Helena var atkvæðamest í liði Vestra með 26 stig, Rakel skoraði 14, Katla 5, Sara 3 og Gréta og Sædís 2 stig hvor. Stelpurnar munu því aftur leika meðal þeirra bestu í lokaumferð Íslandsmótsins sem fram fer í apríl. Það er Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra, sem stýrir þessum vaska hópi.

Vestramenn langt frá sínu besta í Valshöllinni

Í Valshöllinni mætti lið Vestramanna, sem er sameiginlegt lið Vestra og Skallagríms, bestu  liðum landsins í A-riðli. Strákarnir höfðu sýnt styrk sinn í síðustu umferð sem fram fór á Torfnesi í haust en þar unnu þeir riðilinn með glæsibrag. Þessi riðill er afar sterkur og hefur sýnt sig að allir geta unnið alla og liðin því í raun mjög jöfn.

Vestramenn hófu leik gegn nýkrýndum bikarmeisturum Fjölnis. Einn af lykilmönnum liðsins, Marínó Pálmason, var veikur en spilaði samt fyrstu tvo leiki mótsins enda annálaður keppnismaður. Þrátt fyrir köflótta spilamennsku sýndu strákarnir hvað í þeim býr og lögðu Fjölnismenn í framlengingu 77-74. Skemmst er frá því að segja að liðið tapaði öðrum leikjum mótsins og voru úrslit þau að Stjarnan sigraði okkar menn 67-43, Valur 74-61 og KR 63-52. Þrátt fyrir þessi úrslit héldu Vestramenn sæti sínu í A-riðli en Fjölnir féll niður í B-riðil eftir tap í öllum leikjum.

Það voru gestgjafarnir Valsmenn sem hrósuðu sigri í móti helgarinnar með fullt hús stiga, Stjarnan hafnaði í öðru sæti og KR í því þriðja. Síðasta fjölliðamótið í þessum aldurshópi fer fram þriðju helgina í apríl og þá munu fjögur efstu liðin halda áfram í úrslitakeppni Íslandsmótsins sem fram fer um miðjan maí. Þjálfarar Vestramanna eru þeir Nebojsa Knezevic og Pálmi Þór Sævarsson.

Flottar minniboltastelpur á Selfossi

Stelpurnar í minnibolta eldri léku um helgina á Selfossi og mættu þar B og C liði ÍR, Þór Þorlákshöfn og Njarðvík. Okkar stelpur höfðu sigur í öllum leikjum nema gegn Þór Þorlákshöfn og halda þær því sæti sínu í B-riðli Íslandsmótsins í MB11 ára. Stelpurnar voru einungis fimm með í för að þessu sinni en leikið er fjórir á fjóra. Nökkvi Harðarson er þjálfari hópsins og hann var að vonum ánægður með úrslit helgarinnar þótt hann telji að liðið eigi enn meira inni. Þær eiga enn tvö fjölliðamót til góða í vetur en alls eru mótin í þessum aldurshópi fimm talsins.

Deila