Fréttir

Sigur í háspennuleik!

Körfubolti | 11.01.2015
Birgir Björn Pétursson var maður dagsins í dag en hann tryggði sigur á lokasekúndu leiksins.
Birgir Björn Pétursson var maður dagsins í dag en hann tryggði sigur á lokasekúndu leiksins.

Karlalið KFÍ lagði Þór frá Akureyri í seinni leik liðanna í dag í algjörum háspennuleik á Jakanum. Þetta var mikill baráttuleikur og hnífjafn enda réðust úrslitin ekki fyrr en á síðustu sekúndunni þegar Birgir Björn setti niður skot eftir góða sendingu frá Nebosja. Úrslitin 75-74 KFÍ í vil og Birgir Björn maður dagsins!

 

Líkt og í gær hóf KFÍ leikinn betur og leiddi allan fyrri hálfleikinn, mest með 14 stigum. Í síðari hálfleik komust gestirnir svo betur inn í leikinn og jöfnuðu skömmu eftir að hálfleikurinn hófst og komstu svo fljótlega yfir. Eftir það var leikurinn í járnum og liðin skiptust á að leiða með fáum stigum ef ekki var jafnt. Lokasekúndurnar voru svo æsispennandi eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi frá KFÍ-TV. Vic Ian Damasin setti niður tveggja stiga körfu þegar 9 sekúndur voru eftir af leiknum og kom gestunum yfir 73-74. Nebosja var snöggur að koma boltanum í leik og Pance geystist fram völlinn og fann Nebosja aftur sem gerði atlögu að körfunni, dró í sig fjóra leikmenn Þórsara, og fann Birgi Björn lausan undir körfunni. Birgi brást svo ekki bogalistinn og lagði boltann í körfuna þegar aðeins ein sekúnda var eftir.

 

Sigurinn í dag var kærkominn eftir svekkjandi tap gærdagsins. Nebosja, Birgir Björn og Pance voru bestu menn KFÍ en einnig var ánægulegt að sjá ungan leikmann KFÍ, Helga Bergsteinsson, koma inn á með miklum látum, setja þrist, frákasta og berjast vel. Þar er á ferð efnilegur leikmaður sem heldur vonandi áfram á þessari braut. Hjá gestunum var Frisco Sandidge bestur, og trúlega besti maður vallarins líkt og í gær.

 

Nebosja var stigahæstur heimamanna í dag með 27 stig, 8 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Næstur kom Birgir Björn með 22 stig og 10 fráköst. Pance var líka drjúgur með 18 stig og 5 fráköst. Helgi Bergsveinsson átti góða innkomu með 6 stig, 6 fráköst, 2 stoðsendingar og 3 stolna bolta. Jóhann Jakob var með 2 stig og 6 fráköst.

 

Hjá gestunum var Frisco Sandidge lang bestur með 25 stig og hvorki meira né minna en 20 fráköst auk 4 stoðsendinga og 3 stolinna bolta. Næstur kom Arnór Jónsson með 16 stig, Vic Ian með 13 en aðrir með minna.

 

Ítarleg tölfræði leiksins er aðgengileg á vef KKÍ.

Deila