Fréttir

Snerpa og Körfuknattleiksdeildin endurnýja samstarfssamning

Körfubolti | 08.10.2017
Ingólfur Þorleifsson og Jakob Einar við undirritun samningssins.
Ingólfur Þorleifsson og Jakob Einar við undirritun samningssins.
1 af 2

Í hálfleik á fyrsta heimaleik Vestra í 1. deildinni gegn Snæfelli síðastliðinn föstudag var undirritaður endurnýjaður samstarfssamningur Körfuknattleiksdeildar Vestra og tölvu- og netþjónustufyrirtækisins Snerpu á Ísafirði. Snerpa hefur um árabil staðið þétt við bakið á körfuboltanum á Ísafirði en samstarf þessara aðila má rekja u.þ.b. tvo áratugi aftur í tímann. Það er því sérstaklega ánægulegt að endurnýja samstarfið og þakkar stjórn Körfuknattleiksdeildar Vestra Snerpu kærlega fyrir stuðninginn í gegnum tíðina og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.

Það voru þeir Jakob Einar Úlfarsson, sölu- og þjónustustjóri Snerpu og Ingólfur Þorleifsson formaður Kkd Vestra sem undirrituðu samninginn.

Deila