Fréttir

Stór körfuboltahelgi framundan

Körfubolti | 03.10.2017
Meistaraflokkur Vestra 2016-2017. Liðið hefur tekið nokkrum breytingum og er um að gera að mæta á Torfnes og sjá piltana.
Meistaraflokkur Vestra 2016-2017. Liðið hefur tekið nokkrum breytingum og er um að gera að mæta á Torfnes og sjá piltana.

Körfuboltatímabilið fer af stað af fullum krafti á næstu helgi. Meistaraflokkur karla hefur leik á Íslandsmótinu með heimaleik á Jakanum gegn Snæfelli, föstudaginn 6. október kl. 19:15. Frítt er inn á leikinn og hvetjum við alla Ísfirðinga og nærsveitarmenn til að fjölmenna á leikinn og styðja við strákana. Á leiknum verður hægt að kaupa ársmiða á alla heimaleiki liðsins á Íslandsmótinu auk þess sem grillaðir hamborgarar verða í boði fyrir leik á litlar 1.000 kr.

Á laugardag og sunnudag hefja svo stúlkurnar í 9. flokki leik í B-riðli Íslandsmótsins. Fjölliðamót B-riðils fer fram hér heima á Ísafirði og því er um að gera að mæta á Jakann og sjá þessar efnilegu stelpur. Mótið hefst kl. 15:00 á laugardag með leik Vestra og Snæfells. Á sunnudagsmorgun kl. 10:15 mæta stelpurnar svo Haukum og kl. 12:45 KR. Sjoppa Barna- og unglingaráðs verður að sjálfsögðu opin og heitt á könnunni.

Strákarnir í 10. flokki taka einnig þátt í fjölliðamóti um helgina og hefja leik í A-riðli. Vestri hefur tekið upp samstarf við Skallagrím og tefla félögin fram sameiginlegu liði á Íslandsmótinu í vetur. Mótið fer fram í Ásgarði í Garðabæ og verða mótherjar okkar manna, auk heimamanna í Stjörnunni, Fjölnir, KR og Valur.

Á sama tíma leggur „flaggskipið“ Vestri-B svo úr höfn með tveimur útileikjum í 3. deild karla. Fyrri leikur liðsins fer fram í íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði kl. 16:30 en þar mætir „flaggskipið“ C-liði Hauka. Á sunnudag bregða piltarnir sér á Álftanesið og mæta þar heimamönnum kl. 12:00.

Að lokum spila stelpurnar í minnibolta 11 ára á fyrsta móti sínu í vetur um helgina en mótið fer fram í Smáranum og er haldið af Breiðabliki.

Deila