Fréttir

Uppskeruhátíð körfuboltakrakkanna

Körfubolti | 03.05.2017
Uppskeruhátíð Kkd. Vestra fer fram á fimmtudag kl. 18-20 á Torfnesi.
Uppskeruhátíð Kkd. Vestra fer fram á fimmtudag kl. 18-20 á Torfnesi.

Uppskeruhátíð yngri flokka Kkd. Vestra verður haldin á Torfnesi á morgun, fimmtudag, milli klukkan 18-20. Iðkendur deildarinnar á aldrinum 4-16 ára gera sér þá glaðan dag með foreldrum og aðstandendum, viðurkenningar verða veittar og slegið verður upp pylsuveislu. Allir velunnarar körfunnar eru velkomnir á hátíðina.

Frammistaða Vestrakrakkanna í vetur hefur verið afar góð, fleiri hópar tóku þátt í Íslandsmótum en verið hefur um langt árabil og fyrsti bikarmeistaratitill hins nýstofnaða Vestra kom í hús hjá 9. flokki drengja í körfunni. Tvö elstu lið drengjanna luku keppni í vor í A-riðli og tvö elstu lið stúlknanna í B-riðli. Krakkarnir hafa því att kappi við öll bestu lið landsins í sínum aldurshópum í vetur og staðið sig með miklum ágætum. Minnibolti eldri drengja (10-11 ára) á lokamót vetrarins eftir og fer það fram í DHL-höllinni nú um helgina.

Formlegum vetraræfingum iðkenda í 4. bekk og yngri er nú lokið en eldri iðkendur æfa út maímánuð eða fram að hinum árlegu Körfuboltabúðum Vestra, sem fram fara í níunda sinn dagana 30. maí-4. júní. Að búðunum loknum taka við sumaræfingar í körfunni sem verða auglýstar nánar síðar.

Deila