Fréttir

Vestri mætir Skallagrími og Snæfelli á föstudag og mánudag

Körfubolti | 25.01.2018
Tilbúnir í slaginn á nýja gólfinu.
Tilbúnir í slaginn á nýja gólfinu.

Nú er starfsemi Körfuknattleiksdeildar Vestra komin á fleygi ferð. Framundan er löng körfuboltahelgi með tveimur meistaraflokksleikjum og þremur fjölliðamótum á útivelli hjá yngri flokkum.

Vestri tekur á móti Skallagrími í 1. deildinni á morgun föstudag á Jakanum. Þetta er sannakallaður toppslagur því Borgnesingar eru efstir í deildinni með 26 stig en Vestri kemur fast á hæla þeirra, ásamt Hamri og Breiðablik, með 22 stig. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verða hinir rómuðu Vestraborgarar í boði fyrir leik á litlar 1.000 kr. ásamt drykk.

Mánudaginn 29. janúar fáum við svo annað lið sem er í baráttunni um toppsæti deildarinnar í heimsókn þegar Snæfell mætir á Jakann. Snæfellingar eru rétt á eftir liðunum sem nefnd eru hér að ofan með 18 stig. Leikurinn hefst kl. 19:15 að vanda. Óvíst er með grillið á þeim leik en nánar verður tilkynnt um það á Facebook.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á Jakann og styðja strákana sem þurfa á öllum stuðningi að halda í þessum mikilvægu leikjum. Þetta er líka upplagt tækifæri til að sjá hið nýja og glæsilega gólf á Torfnesi með berum augum. Stuðningsmenn liðsins sem ekki búa á norðanverðum Vestfjörðum geta svo að sjálfsögðu fylgst með leikjunum í beinni útsendingu á Jakinn-TV.

Yngri flokkar félagsins verða svo á ferð og flugi um helgina. Tíundi flokkur drengja leikur í A-riðli í þriðju umferð Íslandsmótsins í Valsheimilinu en liðið gengur undir heitinu Vestramenn og er sameiginlegt lið Skallagríms og Vestra. Strákarnir mæta þar heimamönnum, Fjölni, KR og Stjörnunni.  Níundi flokkur stúlkna leikur í þriðju umferð í B-riðli að Ásvöllum í Hafnarfirði, þar mæta þær heimastúlkum í Haukum, Snæfelli og Stjörnunni. Stúlkurnar í minnibolta eldri leika einnig um helgina á Íslandsmótinu og fer það mót fram á Selfossi og spila stelpurnar alls fjóra leiki um helgina.

Deila