Fréttir

Vestri semur við Arnau Valderama

Körfubolti | 22.07.2026

KKD Vestra hefur samið við Arnau Valderama. Hann kemur til með að vera leikmaður auk þess sem hann mun þjálfa yngri flokka hjá félaginu. Arnau er 26 ára spænskur bakvörður, 190 cm á hæð, sem kemur með mikla reynslu úr spænskum körfubolta. Á ferlinum hefur hann meðal annars leikið með CB Castelldefels, Basket Almeda, Ontinyent CB og síðast BC Tecla Sala.

Arnau er hraður og öflugur leikmaður, sterkur varnarmaður og góð þriggja stiga ógn. Hann er jafnframt þekktur fyrir mikinn vinnuanda og fagmennsku, bæði á æfingum og í leikjum.

Við bjóðum Arnau hjartanlega velkominn til Vestra.

Deila