Fréttir

Vestri teflir fram unglingaflokki í körfu

Körfubolti | 28.09.2016
Hákon Ari Halldórsson og félagar í unglingaflokki Vestra taka á móti Valsmönnum á sunnudag.
Hákon Ari Halldórsson og félagar í unglingaflokki Vestra taka á móti Valsmönnum á sunnudag.

Á komandi keppnistímabili mun Vestri tefla fram unglingaflokksliði karla á Íslandsmótinu í körfuknattleik. Fimm ár eru liðin síðan unglingaflokkslið frá Ísafirði tók þátt í Íslandsmótinu, þá að sjálfsögðu undir merkjum KFÍ. Unglingaflokkur karla er skipaður leikmönnum á aldrinum 19 til 20 ára og því er kjarni liðsins einkum leikmenn meistaraflokks en einnig munu yngri leikmenn Vestra leggja flokknum lið.

Fyrsti leikur liðsins er heimaleikur sem fram fer á Jakanum næstkomandi sunnudag 2. október kl. 16:00 þegar strákarnir taka á móti Valsmönnum. Leikurinn markar því upphaf keppnistímabilsins í körfuboltanum og hvetjum við alla til að mæta og styðja strákana.

Áfram Vestri!

Deila