Sund | 10.02.2010
Jæja þá er allt að komast á hreint varðandi mótið.
Mæting er á samkaupsplaninu á milli 07:00 og 07:15 lagt verður af stað kl 07:30 Áætlað er að borða hádegismat í Búðardal, en krakkarnir þurfa að hafa með sér nesti í rútuna. Í þessari ferð Vestra sem og öðrum gildir nammi- og gosbann og biðjum við foreldra að velja nesti með tilliti til þess.
Gist verður í Laugalækjaskóla og þurfa krakkarnir að hafa með sér dýnu og svefnpoka/sæng. Einnig allan almennan búnað sem tilheyrir sundinu.
Fararstjórar í ferðinni eru Guðbjörg Drengs mamma Karlottu og Guðrún mamma Emblu.
Heimferð er áætluð að loknu móti á sunnudag og munu krakkarnir borða kvöldmat í Borganesi. Búið er að biðja um frí fyrir krakkana í skólanum á föstudaginn og einnig í fyrstu tveimur tímunum á mánudaginn.
Kostnaður við ferðina er 14.000kr en þeir sem búnir voru að borga staðfestingargjald borga 9.000kr Hægt er að leggja inn á: