Nýr listi yfir þrif á sundhallalofti hefur nú verið settur á Vestra síðuna. Foreldrar eru beðnir um að kíkja á hann og er hann undir liðnum "starfið" og "þrif á sundhallarlofti" Þeir foreldrar sem ekki eru á listanum munu verða settir á nýjan lista eftir áramót. Ef þið getið ómögulega verið á þeim tíma sem þið eruð sett á þá vinsamlegast skiptið innbyrðis.
Áætlað er að hvert foreldri hafi 1 viku í senn
Það þarf að koma 2x í viku og athuga með rusl, wc, þurrka úr gluggum og hvort þurfi að skúra eða moppa. Gera þarf lokaþrif á föstudegi, laugardegi eða sunnudegi. Skila af sér skúruðu, þrífa wc og þurrka úr gluggum.
Lyklar eru hjá starfsfólki sundhallar og því þarf að þrífa á opnunartíma laugar. Tuskur er hægt að nálgast hjá starfsfólki og skal þeim skilað þangað aftur eftir notkun. Henda skal rusli í tunnur á bakvið sundhöll.