Í gær, miðvikudaginn 29. apríl, var stofnuð akstursíþróttadeild innan íþróttafélagsins Vestra. Góð mæting var á stofnfundinn og augljóst að mikill áhugi er fyrir akstursíþróttum á svæðinu. Tumi Þór Jóhannsson var kjörinn formaður stjórnar hinnar nýstofnuðu deildar og aðrir stjórnarmenn eru Ívar Már Valsson og Martha Kristín Pálmadóttir. Varamenn eru Ebbi Agnarsson, Þórhallur Snædal og Martha Kristín Pálmadóttir, Páll Janus Þórðarson. Formaður Akstursíþróttasambands Íslands, Jón Þór Jónsson, mætti á stofnfundinn og óskaði fundarmönnum til hamingju með stofnun deildarinnar og hafði nokkur orð um starfsemi AKÍS.
Fyrstu keppendur Vestra í aksturíþróttum munu mæta til leiks eftir tvær vikur þegar mótaröð sumarsins í Enduro-mótorhjólakeppni hefst. Viðræður hafa verið við Ísafjarðarbæ um uppbyggingu aðstöðu fyrir íþróttina á svæðinu og eru menn bjartsýnir á að æfinga- og keppnisaðstaða muni líta dagsins ljós á næstu árum. Fyrir uppbyggingu deildarinnar skiptir öllu máli að hafa góða æfingaaðstöðu en sömuleiðis yrði mikill akkur í því fyrir deildina að geta haldið mót á heimavelli þar sem fjölmargir sækja þau, bæði þátttakendur og áhorfendur.
Íþróttafélagið Vestri býður akstursíþróttadeildina velkomna í félagið og óskar þeim velfarnaðar í störfum sínum undir merkjum Vestra.
Áfram Vestri!
Deila