Þann 16. janúar 2016 var haldinn stofnfundur íþróttafélagsins Vestra og fagnar félagið því nú 10 ára afmæli. Af því tilefni var efnt til samkomu í sal félagsins í Vallarhúsinu á Torfnesi þar sem kynnt var nýtt stuðningslag fyrir Vestra. Er það samið af þeim Þormóði Eiríkssyni, Ásgeiri Kristjáni Karlssyni, Elvari Orra Palash Arnarssyni og Kristjáni Sturlu Bjarnasyni. Þá var Hjalti Karlsson útnefndur heiðursfélagi Vestra en hann gegndi formennsku fyrstu árin og leiddi undirbúningsnefnd að stofnun félagsins.
Nú árið 2026 eru deildirnar orðnar 6 með tveimur nýjum deildum, Hjólreiðadeild Vestra og Lyftingadeild Vestra.
Einn af þeim þáttum sem efla styrk Vestra er auk hagræðingar, sameiginleg sýn. Veigamikill þáttur í starfi íþróttafélaga snýr nú sem endranær uppeldis og félagshlutverki. Auk þess að vera með sérlög er Vestri með skýrt afmarkaða jafnréttisstefnu, forvarnarstefnu og siðareglur. Gildi félagsins eru Virðing Gleði og Metnaður.
Félagsmenn og stjórnendur líta á það sem hlutverk Vestra að skapa umhverfi sem hvetur félagsmenn til að ná markmiðum sínum og skara fram úr í leik og starfi. Stjórnendur og aðstandendur Vestra íþróttafélags eru þess meðvitaðir að jafnhliða keppni og sigrum, þá er íþróttastarf uppeldisstarf. Þar eru iðkendum kennd gildi félagsins og þau viðhorf sem samfélagið vill halda á lofti.
Gísli Jón Hjaltason
NánarÍsafjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um akstursstyrki vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna árið 2025. Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember.
NánarVestri er bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir frábæran sigur á Val, 1:0, í úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli. Jeppe Pedersen skoraði eina mark leiksins með frábæru skoti fyrir utan teig. Með sigrinum hefur Vestri tryggt sér þátttökurétt í forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta tímabili.
NánarNú á dögunum komu félagsgjöld inn í heimabanka félagsmanna Vestra. Tekið skal fram að um valgreiðslu er að ræða. Þeir sem óska eftir að gerast félagsmenn og leggja félaginu lið geta farið inn á heimasíðu félagsins, www. vestri.is, þar sem finna má hnapp á forsíðu merktur „Gerast félagi í Vestra". Skráningarform opnast þegar smellt er á hnappinn..
Nánar
Ársskýrslu aðalstjórnar og deilda Vestra fyrir árið 2024 má finna hér ásamt ársreikningi 2024.
NánarAðalfundur íþróttafélagsins Vestra 2025 verður haldinn mánudaginn 28. apríl nk. Fundurinn fer fram í Safnahúsinu, Eyrartúni og hefst kl. 18:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn og aðrir sem koma að starfi félagsins eru hvattir til að mæta á fundinn.
NánarÍslandsmeistaramót Lyftingasambands Íslands var haldið laugardaginn 8. febrúar síðastliðinn í Hafnarfirði. Alls tóku 44 keppendur þátt í mótinu, 13 karlar og 31 kona. Þrír keppendur voru frá Vestra, þær Guðrún Helga Sigurðardóttir, Hjördís Ásta Guðmundsdóttir og Aldís Höskuldsdóttir.
NánarKarlahreysti á Ísafirði (HSV), Ungmennafélag Grindavíkur og Skíðafélag Strandamanna hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ 2024. Verðlaunin voru afhent 12. október sl. á sambandsráðsfundi UMFÍ í Borgarfirði. Hvatningarverðlaun UMFÍ eru veitt fyrir eftirtektarverð og framsækin verkefni sem skara fram úr eða fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins.
NánarSnillingurinn Kristín Örnólfsdóttir hefur hannað Vestra vettlinga og rennur 80% af andvirði hverrar sölu til vestra eða eins og hún segir á Facebook síðu sinni:
Aðalfundur íþróttafélagsins Vestra 2024 verður haldinn mánudaginn 15. apríl nk. Fundurinn fer fram í Vallarhúsinu á Torfnesi og hefst kl. 18:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn og aðrir sem koma að starfi félagsins eru hvattir til að mæta á fundinn.
Nánar