Fréttir

Félagsgjöld Vestra

Vestri | 02.06.2022

Félagsgjöld hafa nú verið send út og berum við þá von í brjósti að sem flestir vilji vera félagar í Vestra og styðja starfið með þeim hætti.

Rétt er að geta þess að allir sem einhvern tímann voru skráðir í þau félög sem seinna sameinuðust undir merkjum íþróttafélagsins Vestra urðu á sínum tíma sjálfkrafa félagsmenn í Vestra. Þeir sem ekki vilja vera félagsmenn geta sent póst á netfangið gjaldkeri@vestri.is eða sent skilaboð á Facebook-síðu félagsins (Vestri – íþróttafélag) og óskað eftir því að vera afskráðir. Hægt er að fela kröfuna í heimabankanum og hún fellur niður í nóvember en viðkomandi er eftir sem áður skráður í félagið nema hann afskrái sig eins og áður segir.

Þeir sem óska eftir að gerast félagsmenn geta farið inn á heimasíðu félagsins, www. vestri.is, þar sem finna má hnapp til hægri (í bláa kassanum) merktur „Gerast félagi í Vestra". Skráningarform opnast þegar smellt er á hnappinn, eða bara smella hér

 

Með Vestrakveðju, 

Guðfinna Hreiðarsdóttir, formaður Vestra

Deila