Hreyfing & fjör er yfirskrift verkefnis á vegum íþróttafélagins Vestra sem hefst 6. mars nk. og er ætlað krökkum í 5. til 10. bekk. Verkefnið, sem er styrkt af íþróttasjóð Rannís, miðar að því að skapa vettvang fyrir börn sem ekki finna sig í hefðbundnu íþróttastarfi og börn sem vilja iðka íþróttir á eigin forsendum án áherslu á keppni eða afreksmiðaðrar þjálfunar.
Æfingar eru gjaldfrjálsar og munu fara fram tvisvar í viku, á mánudögum í íþróttahúsinu við Torfnes milli klukkan 15:00 og 16:00 og á föstudögum í íþróttahúsinu við Austurveg milli klukkan 15:10 og 15:50. Æfingarnar eru iðkendamiðaðar þar sem áhugasvið barnanna fær að ráða för og æfingar eru sniðnar að getu og áhuga iðkenda að hverju sinni. Miðað er að því að þær séu aðgengilegar öllum óháð getu eða fyrri reynslu. Þarna verður veittur stuðningur til að þróa hreyfifærni, auka sjálfstraust og öðlast hreyfivenjur sem geta nýst til frambúðar. Þjálfari verkefnisins er Árni Heiðar Ívarsson sem þarf vart að kynna en hann hefur áratugareynslu af einkaþjálfun, íþróttakennslu og fræðslu tengdri afþreyingu og hreyfingu. Hann hefur starfað bæði með börnum og fullorðnum og hefur djúpan skilning á mikilvægi þess að mæta fjölbreyttum þörfum þátttakenda.
Á æfingum verður einnig unnið með gildi íþróttafélagsins Vestra sem eru virðing, metnaður og gleði og börn frædd um mikilvægi félagslegrar samveru, þátttöku í hópefli og grunnstoðum almennrar lýðheilsu. Ekki síður mikilveg eru einkunnarorð verkefnisins sem eru Hreyfing & Fjör og bundnar eru vonir um að hér sé kominn grundvöllur fyrir langvarandi sambandi barna á grunnskólaaldri við hreyfingu sem heilsubót og fjör í góðum félagsskap.
Áhugasamir geta mætt á æfingar á ofangreindum tímum og fengið skráningarform þar.
Deila