Fréttir

Íþróttafélagið Vestri stofnað

Vestri | 20.01.2016
Fulltrúa félaganna fjögurra sem stóðu að stofnun Vestra handsala sameininguna.
Fulltrúa félaganna fjögurra sem stóðu að stofnun Vestra handsala sameininguna.

Laugardaginn 16. janúar 2016 var íþróttafélagið Vestri formlega stofnað. Með stofnun Vestra sameinast Boltafélag Ísafjarðar, Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar, Sundfélagið Vestri og Blakfélagið Skellur í eitt stórt fjölgreinafélag.

Hjalti Karlsson var kjörinn fyrsti formaður félagsins. Auk Hjalta voru kosin í stjórn þau Gísli Jón Hjaltason, Sigurður Jón Hreinsson, Guðfinna Hreiðarsdóttir, Guðni Guðnason, Sólrún Geirsdóttir og Pétur Markan. Varastjórn skipa Jón Páll Hreinsson og Anna Lind Ragnarsdóttir.

Fyrir stjórninni liggur að finna merki og liti nýs félags. Fjórar deildir eru í félaginu, þ.e. fótbolta-, blak-, körfubolta- og sunddeild.

Stofnfélagar Vestra eru allir félagar og iðkendur í félögunum sem ákváðu að sameinast auk allra sem ganga í Vestra fram að fyrsta aðalfundi félagsins.

Um 70 manns mættu á stofnfundinn í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Vestri ehf. færði félaginu eina milljón króna að gjöf til að ýta félaginu úr vör.

Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa félaganna fjögurra sem stóðu að stofnun Vestra handsala sameininguna. Frá vinstri Ingi Björn Guðnason KFÍ, Sigurður Hreinsson Skelli, Gísli Jón Hjaltason BÍ88 og Páll Janus Þórðarson Sundfélaginu Vestra.

Deila