Fréttir

Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2022

Vestri | 18.01.2023
1 af 3

Í rökstuðningi með tilnefningu Dags segir:

"Dagur hefur æft skíðagöngu með SFÍ frá unga aldri og keppir nú um allan heim fyrir hönd Ísfirðinga. Hann hefur lagt mikið á sig til að komast á þennan stað sem hann er í dag enda krefst það gífurlegs sjálfsaga að komast langt í einstaklingsíþrótt. Til að mynda ver Dagur yfir 700 klst. í æfingar á ári sem er að meðaltali um 2 klst á dag, alla daga ársins. Hann er mikil fyrirmynd fyrir krakkana í SFÍ og passar að kíkja á æfingar þeirra þegar hann er staddur á svæðinu. Dagur er í A-landsliðinu í skíðagöngu og keppir á mörgum helstu stórmótum heims, enda er hann einn af topp þremur Íslendingum á heimslista í skíðagöngu karla. Hann vann til fjölda verðlauna á síðasta ári og má þá helst nefna að hann var annar í mark af öllum í 50 km Fossavatnsgöngu."

 

Tilnefningar í kjörinu um íþróttamann Ísafjarðarbæjar

Karen Rós Valsdóttir – Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar
Jón Gunnar K. Shiransson – Golfklúbbur Ísafjarðar
James M. Parilla f.h. Hilmis Hallgrímssonar – Körfuknattleiksdeild Vestra
Grétar Logi Sigurðsson f.h. Hafsteins Más Sigurðssonar – Blakdeild Vestra
Dagur Benediktsson – Skíðafélag Ísfirðinga
Jón Hálfdán Pétursson f.h. Nicolaj Madsen – Knattspyrnudeild Vestra
Stefán Freyr Jónsson f.h. Rolands Lebedevs – Handknattleiksdeild Harðar

Tilnefningar í kjörinu um efnilegasta íþróttamann Ísafjarðarbæjar

Sverrir Bjarki Svavarsson – Blakdeild Vestra
Pétur Þór Jónsson – Handknattleiksdeild Harðar
Karen Rós Valsdóttir – Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar
Hjálmar Helgi Jakobsson – Golfklúbbur Ísafjarðar
Haukur Fjölnisson – Körfuknattleiksdeild Vestra
Grétar Smári Samúelsson – Skíðafélag Ísfirðinga
Marvin Darri Steinarsson – Knattspyrnudeild Vestra

Deila