Viðburðir

1. deild karla: Vestri - Snæfell

Körfubolti | Jakinn | 06.10.2017 | 19:15 til 20:45
Yngvi Páll Gunnlaugsson og lærisveinar hans verða í eldlínunni föstudaginn 6. október þegar liðið tekur á móti Snæfelli.
Yngvi Páll Gunnlaugsson og lærisveinar hans verða í eldlínunni föstudaginn 6. október þegar liðið tekur á móti Snæfelli.

Þá er loksins komið að því! Íslandsmótið í körfuknattleik er um það bil að hefjast. Vestri tekur á móti Snæfelli í fyrstu umferð hér heima á Jakanum föstudaginn 6. október kl. 19:15. Frítt verður inn á leikinn og hvetjum við Ísfirðinga og nærsveitarmenn til að fjölmenna og leggja sitt á vogarskálarnar þannig að strákarnir fái fljúgandi start inn í tímabilið.

Árskort á alla heimaleiki liðsins á Íslandsmótinu verða til sölu á leiknum og vonumst við til að sem flestir stuðningsmenn tryggi sér kort. Kortunum fylgir einnig kaffi á leikjum. Að vanda verður að sjálfsögðu einnig boðið upp á ljúffenga grillaða hamborgara fyrir leik á litlar 1.000 kr.

Allir á Jakann! Áfram Vestri!

3. deild karla: Álftanes - Vestri-b

Körfubolti | Forsetahöllin, Álftanesi | 07.10.2017 | 16:00 til 17:45

3. deild karla: Haukar - Vestri-b

Körfubolti | Strandagata | 08.10.2017 | 16:00 til 17:45

1. deild karla: Breiðablik - Vestri

Körfubolti | Smárinn, Kópavogi | 09.10.2017 | 19:15 til 20:45

1. deild karla: Vestri - Gnúpverjar

Körfubolti | Jakinn, Torfnesi | 13.10.2017 | 18:00 til 20:00
Vestri tekur á móti nýliðum Gnúpverja föstudaginn 13. október.
Vestri tekur á móti nýliðum Gnúpverja föstudaginn 13. október.

Vestri tekur á móti Gnúpverjum í þriðja leik sínum í 1. deild karla í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 18.

Árskortin verða til sölu á leiknum á hagstæðum kjörum.

Strax að þessum leik loknum mætast B-lið Vestra og KR í 32 liða úrslitum Maltbikarsins, áætlað er að sá leikur hefjist um kl. 20.

Áfram Vestri!

Maltbikarinn: Vestri-b - KR-b

Körfubolti | Jakinn, Torfnesi | 13.10.2017 | 20:00 til 21:30

Maltbikarinn: Sindri - Vestri

Körfubolti | Höfn í Hornafirði | 15.10.2017 | 14:00 til 15:30

Vestri - Fjölnir: 1. deild karla

Körfubolti | -- | 27.10.2017 | 19:15 til 20:45

Vestri tekur á móti Fjölni í 1.deild karla á Jakanum föstudaginn 27. október. Strákarnir eru enn ósigraðir á heimavelli og ætla að halda uppteknum hætti með stuðningi frá áhorfendum.

Leikurinn hefst að vanda kl. 19:15. Aðeins 1.000 kr. aðgangseyrir.

Hvetjum alla til að mæta á Jakann. Áfram Vestri!