5. flokkur stúlkna(U12) tók þátt í TM mótinu í Vestmannaeyjum dagana 10.-13. júní sl. Alls voru 18 leikmenn sem tóku þátt í mótinu fyrir hönd Vestra og stóðu sig frábærlega jafnt innan sem utan vallar. TM mótið(áður Pæjumótið) í Eyjum hefur verið haldið árlega í Vestmannaeyjum frá árinu 1990, og hafa margar af bestu knattspyrnukonum landsins tekið þátt í mótinu á sínum yngri árum.