Á ársþingi Héraðssambands Vestfirðinga sem fram fór á Þingeyri í gær, fimmtudaginn 28. maí, var þeim Sigurði Jóni Hreinssyni og Gísla Jóni Hjaltasyni veitt silfurmerki HSV fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar á norðanverðum Vestfjörðum. Íþróttafélagið Vestri óskar Sigurði og Gísla Jóni til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.
SIGURÐUR JÓN HREINSSON hefur um árabil verið virkur þátttakandi íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ. Hann hefur verið öflugur í störfum sínum fyrir Blakdeild Vestra og þar á undan Blakfélagið Skell. Hann á að baki langa stjórnarsetu í blakinu og hefur verið formaður stóran hluta þess tíma. Sigurður hefur af elju og ósérhlífni sinnt flestum þeim störfum sem starfsemin krefst og sömuleiðis látið að sér kveða á keppnisvellinum. Hann sat um tíma í stjórn Blaksambands Íslands og Héraðssambands Vestfirðinga, þar sem hann gegndi embætti formanns. Sigurður var í undirbúningshópnum sem vann að stofnun íþróttafélagsins Vestra og var kosinn í aðalstjórn félagsins á stofnfundinum 16. janúar 2016. Átti hann þar sæti til ársins 2020 þegar hann tók við formennsku í blakdeildinni að nýju.
Sigurður Jón Hreinsson hefur verið lykilmaður í uppbyggingu Íþróttafélagsins Vestra og unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Að sama skapi er það hverju samfélagi dýrmætt að hafa innan sinna raða einstaklinga sem með sjálfboðastarfi sínu gera íbúum kleift að sækja fjölbreytt og faglegt íþróttastarf í héraði. Sigurður Jón Hreinsson er einn þessara einstaklinga og framlag hans til íþróttamála ómetanlegt og til fyrirmyndar.
GÍSLI JÓN HJALTASON hefur verið virkur þátttakandi íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ um árabil. Hann var formaður knattspyrnufélagsins BÍ/Bolungarvík síðustu árin áður en félagið gekk inn í Vestra og sat í undirbúningshópnum sem vann að því að sameina íþróttafélög á svæðinu í eitt stórt fjölgreinafélag sem leiddi til stofnunar Íþróttafélagsins Vestra 16. janúar 2016. Á stofnfundinum var Gísli Jón kosinn í aðalstjórn félagsins þar sem hann hefur gegnt stjórnarstörfum fram á þennan dag. Gísli Jón hefur alla tíð látið sér annt um íþróttastarf á svæðinu og lagt sitt af mörkum til að það fái vaxið og dafnað. Fyrir íþróttahreyfinguna er hann mikilvægur liðsmaður og fyrirmynd í vinnusemi og samfélagslegri ábyrgð.
Deila