Fréttir

Krakkakarfa á Patró og Bíldudal í boði Arnarlax

Körfubolti | 19.09.2019

Meistaraflokkur karla hjá Körfuknattleiksdeild Vestra  heldur í æfingaferð á sunnanverða Vestfirði um helgina. Fyrirtækið Arnarlax er einn af mikilvægum styrktaraðilum körfunnar og býður fyrirtækið krökkum á svæðinu á á tvær körfuboltaæfingar í tilefni af heimsókninni. Sú fyrri verður á Patreksfirði kl.12:30 á sunnudag og á hin seinni kl. 14:15 Bíldudal. Æfingarnar eru opnar krökkum á öllum aldri og verða í umsjón Péturs Más Sigurðssonar, þjálfara meistaraflokks, og vaskra leikmanna hans sem margir eru þrautreyndir yngri flokkaþjálfarar.

Krakkaæfingar [ATH nýjar tímasetningar og staðsetningar]:
Á Patreksfirði kl. 12:30 á sunnudag í Íþróttamiðstöðinni Brattahlíð.
Á Bíldudal kl. 14:15 á sunnudag í Íþróttamiðstöðinni Byltu.

Auk þess verða æfingar meistaraflokks í Íþróttamiðstöðinni Brattahlíð um helgina opnar almenningi og því um að gera að kíkja og fylgjast með strákunum undirbúa sig fyrir átök vetrarins í 1. deild karla.

Æfingar meistaraflokks:

Á laugardag kl. 11:30-12:45 í Íþróttamiðstöðinni Tálknafirði og kl. 16:00-17:30 á Patreksfirði.
Á sunnudag kl. 10:30-12:00 á Patreksfirði. 

Deila