Vestri og Þór Þorlákshöfn hafa komist að samkomulagi um að unglingalandsliðsmaðurinn Magnús Breki Þórðarson gangi tl liðs við Vestra á lánssamningi. Magnús Breki er fluttur vestur á Ísafjörð og mun hann stunda nám við Menntaskólann á Ísafirði jafnframt því að leika körfubolta með Vestra. Hann hefur leikið með Þór upp alla yngri flokka og nú síðast með meistaraflokki félagsins í úrvalsdeild. Hjá Vestra hittir hann fyrir gamla félaga því hann lék með þeim Nökkva Harðarsyni og Hinriki Guðbjartssyni í sameiginlegu unglingaflokksliði Þórs og Grindavíkur.
Fyrsta verkefni Magnúsar Breka með Vestra er bikarleikurinn gegn Haukum sem fram fer í kvöld, mánudaginn 7. október hér heima.
Magnús Breki er efnilegur bakvörður, fæddur árið 1998 og mun án vafa styrkja hópinn hjá Vestra . Hann varð Norðurlandameistari með U-18 ára landsliði Íslands í júní og lék einnig með liðinu á EM í júlí og ágúst. Magnús Breki hefur komið við sögu í flestum leikjum Þórs í úrvalsdeildinni það sem af er tímabilsins og sýnt góða takta.
Stjórn Vestra býður Magnús Breka hjartanlega velkominn í hópinn og hlakka til samstarfsins við hann.
Deila