Fréttir

Nettó endurnýjar samstarfssamning

Körfubolti | 19.05.2017
Ómar Valdimarsson og Ingi Björn Guðnason handsala endurnýjun samningsins.
Ómar Valdimarsson og Ingi Björn Guðnason handsala endurnýjun samningsins.
1 af 2

Verslunin Samkaup hefur í gegnum árin stutt dyggilega við bakið á körfboltanum á Ísafirði. Í dag opnaði Samkaup nýja og glæsilega verslun á Ísafirði undir merkjum Nettó.  Í tilefni þess handsöluðu þeir Ómar Valdimarsson forstjóri Samkaupa og Ingi Björn Guðnason, ritari Kkd. Vestra endurnýjaðan samstarfssamning milli Nettó og Körfuknattleiksdeildarinnar.

Eins og fyrr segir hefur samstarf Kkd. Vestra og Samkaupa verið afar gott í gegnum árin og hefur yngri flokkastarfið á Ísafirði og nágrenni einkum notið góðs af því. Sú áhersla fyrirtækisins að leggja yngri flokkum sérstaklega lið birtist vel í dag því krakkar sem heimsóttu verslunina fengu körfubolta að gjöf frá Nettó.

Körfuknattleiksdeild Vestra lýsir ánægju sinni með endurnýjun samningsins og hlakkar til áframhaldandi samstarfs á næstu árum við Nettó. Slíkir bakhjarlar skipta sköpum fyrir starf deildarinnar.

Deila