Allt gekk að óskum hjá liðsmönnum Kkd. Vestra sem tóku þátt í Nettómótinu í Reykjanesbæ um helgina en 47 börn voru skráð til keppni í níu liðum. Mótið er ætlað börnum í 1.-5. bekk og hafa þátttakendur frá Vestfjörðum aldrei verið fleiri. Sýndu iðkendurnir okkar miklar framfarir á mótinu auk þess sem prúðmannleg framkoma Vestrakrakkanna vakti athygli mótshaldara og fengu þau mikið hrós fyrir. Óvenjustór hópur foreldra fylgdi börnunum eftir um helgina og var það mál þeirra að mótið hefði í alla staði tekist vel enda umgjörð þess öll hin glæsilegasta.
NánarHátt í 50 keppendur Kkd. Vestra og fjölmennt fylgdarlið er nú óðum að leggja í hann á stærsta körfuboltamót landsins, Nettómótið í Reykjanesbæ, sem fram fer um helgina. Keppendur hafa aldrei verið fleiri auk þess sem mun fleiri foreldrar og systkini fylgja börnum sínum á mótið að þessu sinni en fyrri ár. Stefnir því í að á annað hundrað manns séu á faraldsfæti á Suðurnesjunum á vegum Kkd. Vestra næstu tvo daga. Þjálfarar yngri flokka félagsins fylgja liðum sínum til keppni en talsvert skipulag þarf fyrir svo stóran hóp því Vestri leikur í alls 9 liðum.
NánarMeistaraflokkur karla í körfubolta lék tvo leiki um síðustu helgi. Fyrri leikurinn var gegn ÍA á Skaganum og unnu strákarnir hann sannfærandi 67-76. Síðari leikurinn var gegn toppliði Hattar austur á Egilsstöðum og tapaðist sá leikur 78-54.
NánarBræðurnir Hilmir og Hugi Hallgrímssynir voru í dag valdir í U-15 landslið Íslands í körfuknattleik. Þeir bræður voru seint á síðasta ári valdir í landsliðsúrtak ásamt Agli Fjölnissyni liðsfélaga sínum úr bikarmeistaraliði 9. flokks Vestra og tóku þátt í æfingum á milli jóla og nýárs.
NánarFramundan er stór útileikjahelgi í körfuboltanum. Meistaraflokkur karla leikur á morgun föstudag gegn ÍA á Akranesi og svo gegn toppliði Hattar austur á Egilsstöðum, auk þess sem unglingaflokkar félaganna mætast á laugardag.. Nýkrýndir bikarmeistarar 9. flokks drengja leika svo einnig á laugardag og sunnudag í B-riðli Íslandsmótsins sem fram fer í Borgarnesi og minnibolti eldri drengja spila í Reykjavík.
NánarMeistaraflokkur karla í körfubolta tekur á móti Hamri í 1. deildinni á föstudaginn hér heima á Jakanum. Leikurinn hefst fyrr en venjulega eða kl. 18:30.
NánarStrákarnir í 9. flokki Vestra komu sáu og sigruðu á bikarhelgi KKÍ um helgina. Drengirnir léku til úrslita á sunnudagsmorgni og mættu sterku liði Valsmanna sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar í þessum aldurshópi. Leikurinn var jafn og spennandi en Vestramenn höfðu sigur 49-60.
NánarNíundi flokkur drengja hjá Vestra tryggðu sér á dögunum leik um bikarmeistaratitil KKÍ með frækilegum sigri á Fjölni á útivelli. Á sunnudaginn kemur, þann 12. febrúar, rennur stóra stundin upp þegar liðið mætir Valsmönnum í úrslitaleiknum. Leikurinn hefst klukkan 9:45 og fer að sjálfsögðu fram í Laugardalshöllinni.
NánarSíðastliðnu helgi, 4. og 5. febrúar, gerði Vestri góða ferð í Þorlákshöfn þar sem keppt var í 10. flokki drengja. Auk Vestra tóku lið Snæfells, Tindastóls og Þórs úr Þorlákshöfn þátt í mótinu. Vestramenn sýndu styrk sinn og unnu riðilinn og eru þar með komnir upp í B-riðil.
Nánar
Um helgina fór fram fjölliðamót í B-riðli Íslandsmótsins hjá 9. flokki stúlkna í Bolungarvík. Heimastelpur í Vestra mættu KR-b og Val. Vestrastelpur gerðu sér lítið fyrir og unnu riðlinn og tryggðu sér þar með þátttöku í A-riðli í næstu umferð og fá þá tækifæri til að etja kappi við bestu lið landsins í þessum aldursflokki.
Nánar