Aðalfundur Sundfélagsins Vestra
verður haldinn
Þriðjudaginn 24. mars kl: 20:00
að Skólagötu 10.
Á Dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf.
Fólk er hvatt til að mæta og hafa þannig áhrif á starf félagsins.
NánarEins og sést hér í fréttinni á undan þá er Aðalfundur félagsins framundan. Á dagskrá fundarins er kosning tveggja aðila í stjórn og kosning formanns. Nú þegar eru komnir frambjóðendur í stjórn, en en vantar einhvern sem vill gefa kost á sér til framboðs formanns. Nú er tækifæri fyrir áhugasama foreldra sem vilja styðja börnin sín í íþróttarstarfi þeirra að bjóða sig í fram, ekki er nauðsynlegt að láta vita fyrir fundinn um fyrirhugað framboð en gott væri samt að vita ef einhver ætlaði að gefa sig fram, hægt er að hafa samband við einhvern af núverandi stjórnarmönum.
Ákveðið hefur verið að hætta við f.h skemmtiferð til Þingeyrar vegna slæmrar veðurspár.
Þess í stað munum við hittast niður í sundhöll kl 17:15 og fara í leiki í íþróttahúsinu, hlusta á tónlist, borða pizzu, fara í sund og hafa gaman.
Krakkarnir eiga að koma með 700kr.
Nánar
N.k föstudag mun blái hópurinn ( sem og börn fædd 1996 úr gullhóp) fara í skemmtiferð til Þingeyrar. Munum við leggja af stað frá sundhöllinni kl 17:30 og þurfa því foreldrar að sameinast um að skutla. Við munum svo áætla heimkomu um eða eftir hádegi á laugardag, en það verður allt ákveðið þegar nær dregur.
Krakkarnir þurfa að koma með dýnur og sængurföt og ég mæli með því að þau komi með hlý náttföt með sér því það getur verið hálfkalt í íþróttahúsinu en ekkert sem er ekki mönnum bjóðandi samt sem áður. Ekki gleyma sundfötum sem og innanhúss íþróttafötum.
Kostnaður við ferðina verður 2000kr á barn og innifalið er allt, þ.e.a.s kvöldmatur á Þingeyri á föstudagskvöld sem og kvöldsnakk og morgunmatur.
Jón Páll og Þuríður hafa nú þegar boðið sig fram sem fararstóra og tel ég nóg að hafa 3 fullorðna með þessum 15-20 manna hóp. Ef einhver foreldri er spenntur fyrir að gista með okkur einnig er ekkert því til fyrirstöðu og myndi ég fagna því.
Nánar
Eftirtaldir sundmenn sem æfa hjá Vestra hafa náð lágmörkum á ÍM-50m. Aníta Björk Jóhannsdóttir, Herdís Magnúsdóttir, Brynjar Örn Þorbjörnsson, Anna María Stefánsdóttir, Martha Þorsteinsdóttir, Ástrós Þóra Valsdóttir og Elena Dís Víðisdóttir.
NánarKökubasar hjá utnalandsförum í Samkaup Fösstudaginn 6. mars kl 14:00
Nánar