Sund | 02.04.2015
Páskaeggjahappdrætti 2015
Númerin eru
97- 74-54-35-22-15-191-209-232-272-279-297-299-348-382
Páskaegg er frá Nóa síríus
Hægt er að hringja í síma 8223161
Eða hjá Barnaföt Gyðuömmu Það er opið í dag frá 13:00 til 16:00 í dag skírdag
Takk fyrir Stuðninginn kæru Ísfirðingar
Vestri
Nánar
Sund | 30.03.2015
Sæl öll.
Hér eru æfingatímarnir næstu vikuna, í grófum dráttum haldast æfingar óbreyttar fyrir utan frí á
föstudaginn langa og annan í páskum.
mánudagurinn 30. mars- Silfurhópur 15:00 til 16:00 & Gullhópur 16:00 til 17:00
þriðjudagurinn 31. mars- Gullhópur 18:00 til 19:00
miðvikudagurinn 1. apríl- Silfurhópurinn 15:00 til 16:00 & Gullhópur 16:00 til 17:00
fimmtudagurinn 2. apríl- Gullhópur 18:00 til 19:00
föstudagurinn 3. apríl (föstudagurinn langi)- frílaugardagurinn 4. apríl- Gullhópur 09:00 til 10:00
mánudagurinn 6. apríl (annar í páskum)- fríSvo halda æfingar áfram eins og venja er.
Endilega látið berast
Nánar
Sund | 27.03.2015
Sæl öll.
Hér er dagskráin fyrir páskamótið og svo dagskráin fyrir páskafríið.
Upphitun hefst 15:00 - mótið kl.15:45.
Hlé klukkan 16:30 Sundsýning HSV, eftir sundið er þáttakendum veitt þátttökuverðlaun (páskaegg) og tekin mynd af hópnum. Mótið heldur áfram kl. 16:50
Mótslok og verðlaunaafhending kl. 17:30 Kaffi og með’í í boði í andyrir sundhallarinnar.
Páskavikan:
Æfingartímar halda sér en svo verður frí á föstudaginn langa (3. apríl) og anna í páskum (6. apríl).
Nánar
Sund | 16.03.2015
ATH! Það vatnar fararstjóra fyrir Actavismótið á næstu helgi. Um er að ræða lúxusferð fyrir einn. Ferðin hefst á föstudegi kl.15:00 og er gist fyrstu nótt í lúxusumhverfi af eigin vali. Næsta nótt verður í faðmi Vestrapúkanna á hótel SH Ásmeginn í Ásvallarlaug. Sá eða sú sem vill njóta samveru úrvals einstaklinga og upplifa keppnisstemningu í Hafnarfirði verður að skila inn umsókn á palljanus87@gmail.com eða á Facebook sínuða Páll Janus Þjálfari ekki síðar en á þriðjudag.
Við munum leggja af stað frá Sundhöllinni á föstudaginn kl.15:00 og munu krakkarnir gista hjá vinum og vandamönnum fyrstu nóttina (20.-21.). Krakkarnir þurfa svo að vera mætt í upphitun í Ásvallalaug kl.08:30 á lagardagsmorgninum. Ef einhvern vantar far á mótstað þarf að láta vita af því helst sem fyrst svo hægt sé að vera samferða eða redda skutli og slíku.
Snæddur verður hádegisverður á staðnum og hefst upphitun fyrir seinni hluta laugardagsins kl.14:30.
Á laugardagskvöldinu munum við borða kvöldmat hjá SH í Ásmeginn í Ásvallalaug en svo er svigrúm til að gera eitthvað skemmtilegt á laugardagskvöldinu.
Á sunnudeginum hefst upphitun kl.08:30 og er áætlað að keppni ljúki uppúr hádegi. Þá verður lagt af stað aftur vestur og áætlað að allir séu komnir heim einhverntíma eftir kvöldmat.
Ég vill minna á fyrirkomulagið sem kynnt var að foreldrafundinum en ef einhverjir sundmenn þurfa sérstaka aðstoð af einhverju tagi eða þá að foreldrar/forráðamenn vilja láta vita af einhverju þá þarf að skila slíku inn skriflega annað hvort í tölvupósti á mig (palljanus87@gmail.com) eða Pom (pom@snerpa.is) eða með skilaboðum á Facebook síðuna Páll Janus Þjálfari.
Frekari upplýsingar um mótið má nálgast á heimasíðu SH,http://www.sh.is/id/1000431, en ef þið hafið einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband.
Kveðja,
Páll Janus Þórðarson
Nánar
Sund | 08.03.2015
Fundargerð af forledrafundi sem hanldinn var í kjallara Sundhallarinnar við Austurveg þann 5. mars 2105.
Nánar
Sund | 28.02.2015
Sæl öll.
Næstkomandi fimmtudag, 5. mars, verður haldin foreldrafundur hjá Sundfélaginu Vestra klukkan 19:00 í kjallara Sundhallarinnar, félagsmiðstöðinni.
Á fundinum verður rætt:
Sameining Íþróttafélaga á svæðinu
Útlandaferð og fjáraflanir
Páskamót
Mætingarverðlaung Gull- og Silfurhópa.
Kær kveðja,
Páll Janus Þórðarso
Nánar
Sund | 26.02.2015
Sæl öll.
Eins og staðan er núna kl.10:45 þá stefnum við á að halda uppi æfingum hjá Vestra. Það er hinsvegar sett í hendur foreldra að meta hvort krakkarnir mæti eða ekki. Ekki verður tekin niður mæting í dag.
Kv. Páll Janus Þórðarson
Nánar
Sund | 17.02.2015
Sundfélagið gerði sér ferð á Gullmót KR helgina 13. - 15. febrúar.
Nánar
Sund | 16.02.2015
Sæl öll.
Það er frí á æfingu í dag, 16. febrúar, hjá öllum hópum Vestra.
Uppgjör af Gullmóti KR er væntanlegt en fyrirhuguð skemmtikvöld sem var áætlað að vera með í þessari viku verður frestað þar til í næstu viku. Nánari upplýsingar um þau koma síðar í vikunni.
Kv. Páll Janus Þórðarson
Nánar
Sund | 10.02.2015
Á meðfylgjandi hlekk má finna upplýsingar um Gullmót KR.
http://www.kr.is/sund/wp-content/uploads/sites/11/2015/01/Gullmot2015upplýsingar.pdf
Við stefnum á brottför frá Ísafirði kl.07:00 á föstudagsmorguninn og verðum þá vonandi komin milli 14:00 og 15:00 til reykjavíkur.
Á sunnudeginum er svo áætluð brottför frá Reykjavík kl.13:30, en við munum ekki keppa á síðasta hlutanum sem fer fram eftir hádegi á sunnudeginum.
Ef einhver hefur frekari spurningar um mótið endilega hafið samband.
Kveðaj.
Páll Janus Þórðarson
Nánar