Blakdeild Vestra hélt aðalfund sinn, þriðjudaginn 31 mars sl.
Vel var mætt á fundinn og góðar umræður fóru fram um starfið síðasta ár og það sem framundan er. Í ársreikningi mátti sjá að reksturinn var í ágætis málu og viðunandi afgangur af rekstri, en hjá íþróttafélagi úti á landi með mörgum og dýrum ferðalögum er reksturinn alltaf sveiflukenndur.
Undir liðnum kosningar, var sitjandi stjórn að mestu endurkjörin, en tveir nýjir aðilar komu inn sem varamenn. Sigurður Hreinsson er áfram formaður deildarinnar en aðrir í stjórn eru eftirfarandi: Sólveig Pálsdóttir, Heimir Hansson, Signý Þöll Kristinsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Varamenn eru þau Katarzyna Maliszewska, Katla Vigdís Vernharðsdóttir og Grétar Logi Sigurðsson.
Skýrsla stjórnar
Ágætu félagar.
Að öðrum árum ólöstuðum, þá verður ekki annað sagt um árið 2025, en að það var án vafa besta starfsár Blakdeild Vestra til þessa. Ágæt starfsemi í yngri flokkum félagsins og hjá meistaraflokkunum og öldungaglokkum voru áskoranirnar með þeim allra stærstu. Þá var strandblak stundað af miklu kappi.
Það er því vel við hæfi að halda í þann góða sið að segja síðasta ár hafa verði það besta í sögu deildarinnar til þessa.
Iðkendur
Starfsemi félagsins og iðkendafjöldi hefur verið mjög svipað undanfarin ári.
Í vetur hefur blakdeildin haldið úti æfingum á Ísafirði og í Bolungarvík, en að auki voru kvennaliðin með eina æfingu á Suðureyri síðasta vetur. En Íþróttafélagið Stefnir hefur haldið úti blakæfingum fyrir krakka á Suðureyri.
Þjálfaramál
Haustið 2020 tók Juan Escalona við starfi aðalþjálfari blakdeildar Vestra. Auk þess að þjálfa alla flokka í blaki er hann leikmaður í úrvalsdeildar-karlaliði Vestra og sannarlega betri en enginn.
Vorið 2025 var skrifað undir tveggja ára samning við Juan með endurskoðunarákvæði næsta vor. Gagnkvæmur áhugi er hjá stjórn og Juan að hann verði áfram hjá félaginu en árangur hans með félaginu er eftirtektarverður.
Síðasta vetur, 2024-25 var einnig starfandi þjálfari hjá okkur, og var sérstaklega með kvennaliðið sem spilaði í 1. deild. Það var okkar ágæti leikmaður til fjölda ára, spánverjinn Antonio Fernandez Ortiz.
Meistaraflokkar
Eins og ýjað var að hér rétt áður, hélt Vestri úti tveimur kvennaliðum, veturinn 2024-25. B-kvennalið Vestra keppti það tímabil í 4. deild, á Íslandsmóts kvenna. Eftir fyrstu tvær túnneringar tímabilsins 2024-25 var lið Vestra í efsta sæti deildarinnar, með 20 stig en á loka mótinu, þar sem spilað var til úrslita í efri hluta deildarinnar, endaði liðið í 2. sæti, einu stigi á eftir toppliðinu. Svipað var svo uppi á teninginum þetta tímabilið en þá var liðið komið upp um deild, liðið í næst efsta sæti eftir fyrstu tvær túnneringarnar og spiluðu því til úrslita í efri hluta deildarinnar. Á lokamótinu sem haldið var fyrr í mars, endaði liðið svo í 2 sæti í 3ju deild, eftir æsispennandi leiki.
Haustið 2024 hóf 1. deildar-kvennalið Vestra keppni á Íslandsmótinu, þar sem keppnisfyrirkomulagið er að spila heima og heiman. Skemmst er frá því að segja að árangur liðsins var fram úr björtustu vonum og lauk liðið keppni, sem deildarmeistarar, vorið 2025. Hópurinn var hinsvegar ekki stór og því frekar viðkvæmir fyrir fækkun á leikmönnum. Því fór það svo að liðið spilaði aðeins þetta eina tímabil.
Síðustu ár höfum við verið með skráð B-lið í karlaflokki, þar sem við höfum verið með mjög stórann hóp af ungum strákum. Það lið var skráð í 2.deild á síðasta tímabili og ætlað þeim strákum sem fá lítið af tækifærum með A-liðinu okkar. Á síðasta tímabili endaði það lið í 7 sæti í deildarkeppninni. Þetta tímabil, var árangurinn svipaður, liðið sat í 6 sæti fyrir lokamótið. Á það mót komst liðið hinsvegar ekki á vegna veðurs.
Vorið 2025 lauk karlaliðið sínu sjötta tímabil í úrvalsdeildinni í blaki. Í vetur eru 18 manns löglegir með liðinu, en af þeim hóp er byrjunarliðið 7-8 leikmenn. Á síðasta tímabil endaði Vestri í 5 sæti í deildinni. Árangur þessa tímabils sem er nýlokið hjá okkur var einnig 5 sæti.
Öldungaflokkar
Öldungamótið vorið 2025, Stuðboltinn, var haldið í Mosfellsbæ í byrjun maí. Okkar fólk mætti að sjálfsögðu þar og kepptu undir okkar gömlu merkjum, Skellur.
Konurnar spiluðu í 6.deild A og rúlluðu henni upp, tóku gullið með stæl, unnu alla leiki og töpuðu aðeins einni hrinu. Karlarnir spiluðu hinsvegar í 2. deild og gerðu nánast það sama, tóku gullið með því að vinna alla leiki 2-0, nema þennan eina sem tapaðist í odd.
Yngri flokkar
Frá Vestra voru send lið á öll mót sem við náðum í lið og í einhverjum tilfellum voru stöku leikmenn lánaðir í önnur lið, til að fá spilatíma. Mót var einnig haldið hér í Torfnesi á Ísafirði helgina 16-18 maí í U12 kk, U12 kvk og U14 kk, þar sem um 40 lið mættu til leiks.
Íslandsmót U16 var haldið á Húsavík helgina 9-11 maí. Þangað sendum við stúlkulið auk þess sem einn strákur var lánaður frá okkur í lið Þróttar Nes.
Íslandsmót BLÍ að hausti fyrir U16, U14 og U12 var haldið á nokkrum stöðum í borginni helgina 14-16 nóvember. Á það mót fóru tvö lið frá okkur, U16 kvk og U12 mix og skiluðu bæði lið sér heim aftur með silfur.
U20 kk tók þátt í haustmóti HK sem haldið var 26-28 september. Þá tóku þeir einnig þátt í Bikarmóti BLI sem haldið var 28-30 nóvember og tóku þar bikarmeistaratitilinn.
Af þessari upptalningu má sjá að hér eru öflugir krakkar og nokkuð bjart yfir framtíðinni.
Landsliðsmenn félagsins
Eitthvað var um landsliðsverkefni á síðasta ári, hjá okkar fólki. Alls tóku 5 af okkar fólki þátt í landsliðsverkefnum á árinu 2025. Margrét Embla var valin í A-landsliðið sem keppti á smáþjóðaleikunum síðasta vor. Grétar Logi var í úrtaki fyrir U19 landsliðið í sumar, en komst ekki í lokahóp. Sverrir Bjarki var valinn í A-landsliðs hópinn sem spilaði á Smáþjóðaleikunum í júní á síðasta ári, en gaf ekki kost á sér vegna vinnu og kostnaðar. Það gerði hinsvegar Hafsteinn Már, sem spilaði þar sinn 35 A-landsliðsleik og er hann líklega landsleikjahæsti íbúi Ísafjarðarbæjar, í sögu bæjarfélagsins.
Þá var Þrymur Rafn Andersen valinn í U17 hóp sl haust og spilaði á Smáþjóðaleikum Evrópu sem fram fór í janúar á þessu ári, en þar vann liðið til gullverðlauna. Ekki slæmt hjá nýliðanum Þrym að taka gullverðlaun í sínu fyrsta landsliðsverkefni.
Fjárhagur og fjáraflanir
Fjárhagur félagsins hefur í mörg ár verið nokkuð sveiflukenndur en nokkuð tap hefur verið á rekstrinum síðustu ár, en reksturinn var yfir núllinu á síðasta ári.
Ferðakostnaður keppnisliða er sífellt vaxandi viðfangsefni með fjölgun leikja í úrvalsdeild og fækkun á bílaleigum, en kostnaðar vegna aðfluttra leikmanna var á síðasta ári alveg í lágmarki. Áfram er það eitt af mikilvægustu verkefnunum að efla tekjustofna félagsins, en allar líkur eru á því að lottótekjur séu svotil liðin tíð.
Undanfarin ár hefur félagið fyrst og fremst tekið að sér fjáraflanir sem útheimta vinnuafl (ekki sölufjáraflanir), fjöruhreinsun í Skutulsfirði, hreinsun á Eyrinni í Skutulsfirði og slátt í kirkjugarðinum í Hnífsdal.
Þá hefur mótahald á yngriflokkamótum verið félaginu drjúg tekjulind, þau ár sem það hefur verið í boði.
Strandblak
Frá því að framkvæmdum lauk við strandblakvöllinn í Tungudal, hefur verið hægur stígandi í iðkun strandblaks í Skutulsfirði.
Á síðasta sumri voru táningarnir okkar nokkuð duglegir að stunda sandinn og mættu á allnokkur stigamót í Íslandsmótaröðinni.
Lokaorð
Ég verð að segja að það er áhyggjuefni að sanngirni og jafnræði í íþróttastarfi virðist eiga undir högg að sækja, ekki síst í boði sveitarfélagsins.
Úthlutun æfingatíma í íþróttahúsum síðustu tvö haust er að mínu mati einhver augljósustu dæmin sem finna má um óheiðarleika tengt íþróttastarfi, hér um slóðir og er án vafa klárt brot á stjórnsýslulögum. Síðasta haust var verulega mikið hallað á blakið, en hefði úthlutun verið sanngjörn og samkvæmt reglum hefði blakið verið með um 30% fleiri æfingatíma. Og það er sérstaklega sárt til þess að hugsa að í þessu máli brugðust okkur bæði stjórn HSV og aðalstjórn Vestra, þegar við marg reyndum að fá leiðréttingu, því þessi úthlutun var ekkert annað en atlaga að starfi Blakdeildar Vestra.
Þá aðeins um stuðning við afreksstarf. Hvernig getur það talist eðlilegt að krakkar í hópíþróttum héðan úr sveitarfélaginu, sem valdir eru í dýrar landsliðsferðir fái kannski 30-40 þúsund krónur upp í þann kostnað á sama tíma og aðilar sem stunda ónefndar einstaklingsíþróttir fá styrki sem telja má í milljónum árlega, óháð því hvort að viðkomandi séu íbúar sveitarfélagsins. Fyrir skemmstu var svo samþykkt í bæjarstjórn sérstök auka greiðsla til tveggja einstaklinga sem fóru á Vetrarólympíuleikana, upp á eina milljón á hvort. Hvorugt þessara einstaklinga eru íbúar í Ísafjarðarbæ.
Og svo er það íþróttamaður Ísafjarðarbæjar. Er ekki eitthvað skakkt við það að af síðustu 10 útnefningum, séu aðeins 3 á íbúa í sveitarfélaginu. Í flestum sambærilegum bæjarfélögum er það skilyrði fyrir tilnefningu að viðkomandi sé íbúi sveitarfélagsins.
Allt saman tekið, hvaða skilaboð eru þetta til okkar, okkar iðkenda og okkar starfs ?
Ég vill þakka félagsmönnum fyrir stórkostlegt ár 2025.
Þetta ár og þau næstu bjóða upp á spennandi áskoranir. Höfum það í huga að blak er íþrótt fyrir alla aldurshópa og virkar bæði fyrir afreksstarf, til eflingar lýðheilsu og allt þar á milli.
Við höfum haldið úti meistaraflokkum kvenna í næstum 20 ár, höfum staðið fyrir yngriflokkastarfi í jafn langan tíma og undanfarin 7 ár höfum við verið með lið í efstu deild í karlaflokki. Í gegnum okkar starf hafa komið í heildina 19 landsliðsmenn og þar af 6 manns sem hafa spilað eða spila enn, með A-landsliðunum.
Veturinn 2024-25 var blakdeildin með um 55% af iðkendum í meistaraflokkum, samkvæmt talningu í Torfnesi. Í okkar hópi er mikið af efnilegum iðkendum og við höfum fulla ástæðu til að bera höfuðið hátt og krefjast þess að tekið sé tillit til okkar.
Áfram blak og áfram Vestri.
Takk fyrir mig.
Sigurður Hreinsson
Nánar
Aðalfundur Blakdeildar Vestra vegna starfsársins 2025, verður haldinn á kaffistofu Ístækni, Sindragötu 5, þriðjudaginn 31. mars og hefst hann kl. 16:30.
Samkvæmt lögum deildarinnar er dagskrá aðalfundar sem hér segir:
- Fundarsetning. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar og ársreikningar
- Reglugerðabreytingar. Reikna má með að lögð verði fram tillaga um breytingar á reglugerð.
-Kosningar:
a) Kosinn formaður deildar til eins árs.
b) Kosið í meistaraflokksráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
c) Kosið í yngriflokkaráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
Önnur mál.
Félagar og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna.
Laugardaginn 7 febrúar fór fram á Torfnesi, leikur í úrvalsdeild karla í blaki, þegar heimamenn í Vestra tók á móti vinum okkar í Aftureldingu. Hér fyrir vestan er þetta lið Aftureldingar stundum kallað af gárungunum, Vestri Bé, því í liðinu eru þrír fyrrum leikmenn Vestra.
Fyrir leikinn voru liðin í 4 og 5 sæti í deildinni, Afturelding í því efra í spennandi toppbaráttu, með 34 stig en Vestri á lygnum sjó fyrir miðri deild með 19 stig.
Leikurinn var hin besta skemmtun, þrátt fyrir að augljóst væri að gestirnir mættu ákveðnir til leiks.
Fyrsta hrina var nokkuð jöfn til að byrja með, en í stöðunni 10-9 fyrir gestunum, sigu þeir fram úr, náðu mest 6 stiga forskoti og kláruðu hrinuna 25-21
Önnur hryna byrjaði svipað og sú síðasta, en þegar komið var fram yfir 10 stigin, settu gestirnir í túrbógírinn og einokuðu stigatöfluna. Hrinunni lauk 25-12.
Í þriðju hrinunnu voru heimamenn búnir að spýta vel í lófana og leiddu hrinuna framan af. Gestirnir náðu hinsvegar að jafna í stöðunni 12-12 og leiddu hrinuna eftir það með nokkrum stigum. Spenna var því fram á síðasta stig, en gestirnir náðu þriðju hrinunni einnig, en nú með minnsta mun 25-23 og þar með leikinn 3-0.
Stigahæstir heimamanna voru Juan Escalona, með 10 stig og Sverrir Bjarki með 9 stig. Stigahæstir gestanna voru svo Tomek Leik með 23 stig, og gömlu Vestrastrákarnir Hafsteinn Már með 13 stig og Antonio með 6 stig.
Á næstu helgi er Vestraliðið á faraldsfæti, en þeir sækja þá heim Þrótt í Neskaupstað og er það næst síðasta ferðalag tímabilsins.
NánarUngmennalið Vestra í blaki varð um helgina bikarmeistari í flokki karla 20 ára og yngri. Bikarkeppnin var spiluð að Varmá í Mosfellsbæ og hófst á fjögurra leikja undankeppni. Þar sigruðu Vestrastrákarnir í öllum sínum leikjum og töpuðu aðeins einni hrinu. Þessi árangur skilaði þeim í úrslitaleikinn þar sem þeir mættu sterku liði KA.
Í úrslitaleiknum mættu Akureyringar grimmir til leiks og unnu fyrstu hrinuna eftir upphækkun. Eftir það litu Vestramenn hins vegar aldrei til baka, unnu næstu þrjár hrinur nokkuð örugglega og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn.
Þetta Vestralið samanstendur af piltum á aldrinum 14 til 19 ára og fyrir marga þeirra var þetta síðasta mótið í unglingaflokki eftir að hafa um árabil skipað eitt allra sterkasta unglinga- og ungmennalið landsins. Það er til marks um gott starf í yngri flokkum Vestra að allir piltarnir í bikarmeistaraliðinu hafa, þrátt fyrir ungan aldur, skilað sér upp í meistaraflokk þar sem þeir mynda nú kjarnann í úrvalsdeildarliði Vestra. Tveir þeirra spila raunar með öðrum úrvalsdeildarliðum, en hafa heimild til að spila með Vestra í U-20 leikjum.
NánarÚrvalsdeildarlið Vestra á Íslandsmótinu kk í blaki, spilar sinn fimmta leik á tímabilinu seinna í dag, þegar liðið heimsækir topplið Hamars í Hveragerði.
Á þeim þremur vikum sem liðnar eru síðan tímabilið hófst, eru Vestrapiltar búnir að spila fjóra leiki og allir hafa þeir verið á móti liði sem heitir Þróttur. Tveir fyrstu leikirnir voru heimaleikir á móti Þrótti Fjarðarbyggð, eins og fram kom í síðustu frétt. Seinni tveir leikirnir voru svo útileikir á móti Þrótti Reykjavík.
Fyrri leikurinn á móti Þrótti R. var stórkostleg skemmtun sem endaði í oddahrynu. Þar náðu okkar menn að standa sína plikt, og lönduðu sigri 15-12 eftir mjög jafna bráttu.
Seinni leikurinn var ekki alveg jafn skemmtilegur, lauk með sigri Þróttar 3-0.
Íslandsmótið í vetur er spilað í þremur umferðum. Það er ástæðan fyrir því að spilaðir eru tvíhöfðar svokallaðir, stundum í heimaleikjum en hina stundina í útileikjum.
En okkar menn hafa byrjað tímabilið með prýði og standa ágætlega að vígi eins og sjá má á meðfylgjandi stigatöflu. Rétt er samt að taka fram að liðin hafa spilað mis marga leiki, Vestri, Hamar og HK hafa spilað 4 leiki, flest hin liðin 3.
Aðrar blakfréttir eru þær helstar að helgina 25-26 október fer fram túnnering í neðri deildunum á Íslandsmótinu í blaki. Kvennaliðið okkar sem spilar í 3ju deildinni í vetur og fer fyrsta mótið fram á Húsavík.
B-lið karla spilar í 2. deild og verður fyrsta mótið haldið hér á Ísafirði. Viljum við hvetja heimamenn til að mæta og hvetja strákana okkar í baráttunni.
NánarKarlalið Vestra í blaki hóf sitt sjöunda tímabil í efstu deild um helgina, þegar fulltrúar Austurlands, Þróttur í Fjarðarbyggð, lagði land undir fót og mættu okkar mönnum í Torfnesi.
Spilaðir voru tveir leikir sem voru hin mesta skemmtun, enda afar jafnir og háspenna á köflum.
Í laugardagsleiknum skiptust liðin lengst af á því að skora stig. Fyrsta hrinan var þannig jöfn í stöðunni 10-10, 14-14 og 18-18. Þá tóku heimamenn á sig rögg, náðu fjögurra stiga forskoti og skiptu út helminginn af liðinu. Fyrsta hrinan endaði 25-22. Önnur hrina var áþekk, jafnt í 4-4, 12-12 og 14-14. En í stöðunni 19-18 fyrir Vestra, bættu heimamenn í og tóku 6 stig á móti einu stigi gestanna. Sama er að segja um þriðju hrinuna, jafnt í stöðunni 2-2, 10-10 og 16-16. Vestramenn áttu lokaorðin í hrinunni, með þremur síðustu stigunum og kláruðu hana 25-21 og leikinn þannig 3-0.
Stigahæstir í leiknum voru hjá Þrótti þeir Raul Garcia Asensio, með 16 stig, og Leonardo Aballay með 8 stig. Hjá Vestra voru þeir Sverrir Bjarki með 11 stig og Benedikt og Adria með 8 stig hvor.
Sunnudagsleikurinn var enn jafnari, en þá mættu gestirnir ákveðnir á leikstað. Fyrsta hrinan var þannig jöfn í stöðunni 3-3, 5-6, 8-8 og 13-13. Gestirnir náðu þá að slíta sig aðeins frá heimamönnunum og luku hrinunni með 4 stiga mun, 25-21. Önnur hrinan var áþekk, þar sem liðin skiptust á að leiða. Þannig náðu Þróttarar á einum tíma 5 stiga forskoti. En jafnt var í stöðunum 4-4, 13-13, 19-19 og 21-21. Vestramenn áttu svo lokaorðin í hrinunni og luku henni 25-22. Þriðju hrinu leiddi Vestri nánast allann tímann, en Þróttarar komust yfir í stöðunni 9-8, annars leiddi Vestri og luku hrinunni 25-21. Fjórðu hrinuna byrjuðu Vestrapiltar betur og leiddu megnið af tímanum og náðu all nokkru forskoti á tímabili, 9-3. Þróttarar gáfust hinsvegar ekki upp og náðu að jafna í stöðunni 17-17. Á endasprettinum voru Þróttarar sterkari og náðu að klára hana 25-23 og knýja fram oddahrinu. Í oddahrinunni var Vestri sterkara liðið, og náðu að leiðna hana eftir stöðuna 3-3. Eftir því sem leið á hrinuna tognaði heldur á milli og lokatölur oddahrinunnar voru 15-10 og Vestri vann því 3-2.
Tölfræði úr seinni leiknum lá ekki fyrir þegar fréttin var skrifuð.
Vinum okkar í Þrótti þökkum við fyrir komuna og óskum þeim góðar heimferðar.
NánarAðalfundur Blakdeildar Vestra vegna starfsársins 2024, verður haldinn í Fræðslumiðstöð Vestfjarða miðvikudaginn 2. apríl og hefst hann kl. 20:00.
Samkvæmt lögum deildarinnar er dagskrá eftirfarandi á hefðbundnum aðalfundi:
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Formaður blakdeildar gerir grein fyrir starfsemi deildarinnar á liðnu starfsári. Gerð verður grein fyrir reikningum deildarinnar sem staðfestir hafa verið af kjörnum skoðunarmanni og gjaldkera aðalstjórnar og þeir bornir upp til samþykktar.
Reglugerðabreytingar. Reikna má með að lögð verði fram tillaga um breytingar á reglugerð, sem snýr að fjölda stjórnarmanna.
Kosningar:
a) Kosinn formaður deildar til eins árs.
b) Kosið í meistaraflokksráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
c) Kosið í yngriflokkaráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
Önnur mál.
Félagar og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna.
Blakdeild Vestra hefur samið við þjálfarann Juan Manuel Escalona Rojas um tveggja ára framlengingu á samningi hans við félagið.
Juan kom sem leikmaður til Vestra haustið 2019, en frá haustinu 2020 hefur hann verið aðalþjálfari félagsins og hefur náð eftirtektarverðum árangri, ekki síst meistaraflokksliði karla. Meistaraflokkur karla er kominn í fremstu röð blakliða á Íslandi og hefur á undanförnum árum m.a. komist í úrslitaleik bikarkeppninnar og undanúrslit Íslandsmótsins. Þá hafa yngri flokkar Vestra unnið Íslands- og bikarmeistaratitla, auk deildarmeistaratitla í neðri deildum. Allmargir leikmenn Vestra hafa einnig verið valdir í landslið Íslands, bæði ungmennalandslið og A landslið karla. Sjálfur hefur Juan tvisvar sinnum verið kosinn þjálfari ársins af Blaksambandi Íslands.
Það ríkir því eðlilega mikil ánægja með það innan Blakdeildar Vestra að Juan skuli vera tilbúinn til að helga félaginu starfskrafta sína og halda áfram þeirri uppbyggingu sem hann og annað Vestrafólk hefur staðið fyrir síðustu ár.
NánarBoðað er til framhalds-aðalfundar blakdeildar Vestra, miðvikudaginn 2 október nk, kl 18:00.
Fundurinn fer fram á kaffistofu Ístækni, við Sindragötu 5.
Á dagskrá eru eftirfarandi tvö atriði:
1. Kosning í stjórn.
2. Önnur mál.
Félagsmenn og foreldrar iðkenda eru hvattir til að fjölmenna.
Þá eru félagsmenn einnig minntir á að blakdeild Vestra getur ekki haldið úti öflugu starfi, nema með þáttöku félagsmanna í stjórnarstörfum.
NánarÍsfirðingurinn Hafsteinn Már Sigurðsson mun á komandi tímabili spila með karlaliði Habo í sænsku úrvalsdeildinni í blaki, en gengið var frá samningum um það í síðustu viku.
Habo er 12 þúsund manna bær í sunnanverðri Svíþjóð, staðsett við Vatten, sem er eitt af stærstu stöðuvötnum í landinu. Blaklið Habo er að mestu byggt upp á ungum heimamönnum en hefur engu að síður staðið sig vel í Sænsku deildinni og endað í topp 4 í deildinni síðustu tímabil.
Hafsteinn Már er uppalinn í Vestra í gegnum yngriflokka, en byrjaði að spila með karlaliðinu tímabilið 2015-16, á fyrsta tímabili Vestra í næst efstu deild í blaki. Fjórum árum síðar hóf Vestri þátttöku í úrvalsdeild, eftir að hafa unnið 1. deild tvisvar. Með Vestra hefur Hafsteinn Már spilað allar stöður á vellinum, en hefur undanfarin ár spilað stöðu Dió og hefur sem slíkur verið kjörinn tvisvar í draumalið úrvalsdeildarinnar síðustu fjögur ár og var eftir síðasta tímabil valinn besti íslendingurinn í deildinni.
Með Hafstein Má sem fyrirliða, náði úrvalsdeildarlið Vestra tvisvar að enda í 4 sæti í deildinni og komast jafn oft í undanúrslit í Kjörísbikarnum. Síðustu tvö tímabil hefur Hafsteinn Már verið í námi fyrir sunnan og spilað með úrvalsdeildarliði Aftureldingar og spilaði í vor til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á móti Hamri.
Hafsteinn Már hefur spilað með Íslenska landsliðinu frá árinu 2016, þá fyrst með U17, en hefur síðustu 3 ár spilað með A-landsliðinu og verið með öflugustu leikmönnum liðsins.
Nánar