Ágætis árangur náðist hjá Vestfirskum tippurum um liðna helgi, átta ellefur sáustog fjölmargar tíur en 10 réttir skiluðu vinningi. Samtals vinningar til tippara í getraunaleik Vestra voru u.þ.b kr. 47.000. Oft verið töluvert verra
Staðan á toppnum breytist ekkert þar sem stóru liðin voru öll með 11 rétta. Skúrverjar enn efstir með eins stigs forystu á HG menn.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Vorleikur er 17 vikna leikur, 14 bestu telja.
Stóri pottur náði 12 réttum sem skilaði kr. 70.000 í vinning sem var um 70% af kaupvirði miða. Tókum stóran miða þessa helgina. Sérfræðingar okkar voru reyndar getspakir, voru með alla leikina rétta aðra vikuna í röð. Kerfið hélt bara ekki. 13 réttir skiluðu tæpum 1,5 milljónum þessa helgina þannig að við vorum ekki langt frá mjög stórum vinningi.
Næsti seðill er erfiður venju samkvæmt, 4 leikir úr efstu deild og 9 úr B deildinni. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði
NánarÞar kom að því. Sérfræðingar okkar náðu 13 réttum og var heildarvinningur kr 880.000. Seðillinn kostaði kr. 61.500 þannig að hluthafar í pottinum fengu tæpa fimmtánföldum fyrir framlag sitt. Hver þúsund króna hlutur fékk þannig kr. 14.500 í vinning. Verulega góð ávöxtun.
Það er alltaf pláss fyrir fleiri í stóra potti, áhugasamir sendi póst á getraunir@vestri.is .
Í getraunaleiknum náðu HG menn 12 réttum og minnkuðu þannig bilið í Skúrverja, sitja nú í 2. sæti einu stigi á eftir Team Skúrinn. Nokkrar ellefur sáust einnig, ljómandi árangur.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Vorleikur er 17 vikna leikur, 14 bestu telja.
Næsti seðill er strembinn venju samkæmt, 5 leikir úr efstu deild og 8 úr þeirri næstu Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði
Nánar
Ágætis arangur náðist hjá Vestfirskum tippurum um liðna helgi, ein tólfa sást og nokkrar ellefur. Almar var einn með 12 rétta en hann spilar fyrir Skúrinn og hlaut hann kr.15.300 í vinning, var með Bournemouth leikinn rangan eins og svo margir.
Þetta þýðir að Skúrinn eykur forystu sína á toppnum í 2 stig en HG voru með 11 rétta en Hampiðjan með 10. Reyndar er Ingólfur Þórleifsson í 3. sæti með 30 stig, greinilega kunnáttumaður um enska boltann þar á ferð.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Vorleikur er 17 vikna leikur, 14 bestu telja.
Stóri pottur náði einungis 10 réttum sem verður nú að teljast frekar slakt. Lognið fyrir storminn, styttist í þann stóra.
Næsti seðill er djöfullegur enda bikarhelgi, að vísu einn leikur úr efstu deild og annar úr þeirri næstu, 5 úr C deild og þá 6 úr bikar. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Southampton - Arsenal
15:00 West Ham - Doncaster
17:30 Cheltenham - Manchester City
Nánar
Bikarinn fór illa venju samkvæmt í tippara. Besti árangur helgarinnar voru heilir 10 réttir og náðu þrír aðilar þeim árangri. Rétt að nefna að Magnús Bjarnason náði 10 réttum, vel gert Magnús, langt síðan hann náði vinningi.
Ekki mikill fjárhagslegur ávinningur en fyrir 10 rétta fengu tipparar kr. 800.
Fulltrúar Skúrsins og HG fengu einnig 10 réttu sem þýðir að Skúrinn heldur toppsætinu, einu stigi á undan Team HG, nokkrir tippar koma síðan þar á eftir með 19 stig.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Vorleikur er 17 vikna leikur, 14 bestu telja.
Stóri pottur náði einnig 10 réttum sem skilaði kr. 4.800 í vinning. Vorum með 2 ranga leiki á seðli og kerfið missti út einn, gengur betur næst.
Næsti seðill er þægilegri en sá síðasti, bikarinn alltaf erfiður. 4 leikir úr efstu deild og 9 úr B deildinni. Ritstjórn fagnar ávallt Leeds leikjum á seðli. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Wolves - WBA
15:00 Leeds - Brighton
17:30 Fulham - Cheklsea
20:00 Leicester - Southampton
NánarVorleikur 2021 hófst um liðna helgi. Það er skemmst frá því að segja að fyrirliði Skúrsins var einn með 11 rétta og því sitja Skúrverjar einir á toppnum. Sama stef og verið hefur. Nú þurfa mótherjar að spýta í lófana góðu.
Fyrir 11 rétta fékk Dóri kr. 3.370 í vinning sem þó dugði ekki fyrir andvirði miðans. Árangur helgarinn alveg hæfilega góður hjá vestfirskum tippurum , einar 15 tíur sáust sem skiluðu tippurum smá vinningum.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Vorleikur er 17 vikna leikur, 14 bestu telja.
Stóri pottur náði 12 réttum og sem skilaði kr. 26.670 í vinning sem er tæpur helmingur af andvirði miðans. Hluthafar fengu upp í kostnað. Styttist í þann stóra.
Næsti seðill er óvenju snúinn, bikarhelgi. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:00 Everton - Rotherham
15:00 QPR - Fulham
17:30 Arsenal - Newcastle
20:00 Manchester United - Watford
NánarHaustleik 2020 lauk með glæsilegum sigri Skúrverja, léku einkar vel og sigruðu deildina með 6 stiga mun, enduðu með 123 stig samtals en Hampiðjan endaði í öðru sæti með 117 stig. Team HG lentu svo í 3. sæti með 115 stig.
Annars má sjá árangur keppenda og lokastöðuna í haustleik 2020 hér.
Nú þurfa önnur lið að þétta raðir og stöðvar þessa Skúrmenn en vorleikur 2021 hefst strax næsta laugardag og verður leikið út apríl eða 17 umferðir og munu 14 bestu telja.
Árangur vestfirskra tippara um síðustu helgi var ekki til fyrirmyndar, nokkrar ellefur sáust og var Guðni með flestar raðir réttar og fékk heilar kr. 1.770 í vinning. Stóri pottur náði einnig 11 réttum og náði einnig kr. 1770 í vinningsfé sem er ekki alveg nógu gott, gerum betur næst.
Næsti seðill er snúinn venju samkvæmt, 3 leikir úr efstu deild og 10 leikir úr B deildinni. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Alltaf er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Tottenham - Leeds United
15:00 Crystal Palace - Sheffield United
17:30 Brighotn - Wolves
Nánar
Fyrirliðinn og eigandinn, Dóri Eró sá um að skila sigri í haustleiknum 2020. Dóri náði einn 12 réttum og hlaut í vinning kr. 98.000, vel gert Halldór. Langt í næstu menn því enginn í leiknum náði 11 réttum, það er því ljóst að Skúrinn er öruggur sigurvegari haustleiks.
Í toppbaráttunni náðu HG menn 10 réttum, en Hampiðjumenn ekki nema 9 réttum.
Þetta þýðir að Skúrverjar sitja einir á toppnum með fjögurra stiga forystu á Hampiðjumenn þegar ein umferð er eftir. HG kemur þar 3 stigum á etir. Búð er að draga tvær verstu vikurnar frá. Aðal spennan núna er hvort Sigrún haldi 4. sætinu, en hún er með langbestan árangur keppenda pr. tippaða krónu.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér.
Stóri pottur náði 11 réttum sem skilaði kr.22.000í vinning, sem var um þriðjungur af verðmæti seðils, framför frá fyrri viku.
Næsti seðill er óvenjulegur að því leiti að við fáum heila 5 leiki úr efstu deild og 8 leikir úr B deildinni. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Leicester - Manchester United
15:00 Aston Villa - Crystal Palace
17:30 Arsenal - Chelsea
20:00 Manchester City - Newcastle
NánarÁrangur helgarinn alveg hæfilega góður hjá vestfirskum tippurum , 3 ellefur sáust og heldur Eddi HG mönnum á floti, búinn að redda þeim tvær síðustu vikur. Gummi Gísla með flestar raðir réttar, eina ellefu og slatta af öðrum, náði sér kr. 6.160 í vinning sem er mesti afrakstur helgarinnar, óvenju slakt.
Á toppnum náðu Skúrverjar og HG menn þannig 11 réttum, en Hampiðjumenn ekki nema 10 réttum.
Þetta þýðir að Skúrverjar sitja einir á toppnum með tveggja stiga forystu á Hampiðjumenn. HG kemur þar 3 stigum á etir.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Búið að draga eina viku frá, eigum eftir að taka aðra, tvær verstu vikurnar dregnar frá.
Stóri pottur náði ekki nema 10 réttum sem skilaði kr.280 í vinning. Ekki alveg skv. plani. Gengur betur næst, getum ekki alltaf unnið
Næsti seðill er snúinn venju samkvæmt, 3 leikir úr efstu deild og 10 leikir úr B deildinni. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Crystal Palace - Liverpool
15:00 Southampton - Manchester City
17:30 Everton - Arsenal
20:00 Newcastle - Fulham
NánarÁgætis árangur náðist um liðna helgi Edward Hoblyn náði 12 réttum sem skilaði kr. 78.500 í vinning, vel gert Eddi. Tvær ellefur sáust og var Gísli Jón með aðra og Hampiðjan hina, svakalegur gangur á Gísla Jóni þessi dægrin
Á toppnum náðu Skúrverjar þannig 12 réttum, Hampiðjan 11, en HG menn ekki nema 10 réttum.
Þetta þýðir að Skúrverjar sitja einir á toppnum með eins stigs forystu á Hampiðjumenn. HG kemur þar 4 stigum á etir.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér. Búið að draga eina viku frá, eigum eftir að taka aðra, tvær verstu vikurnar dregnar frá.
Stóri pottur náði ekki nema 10 réttum sem skilaði litlu í vinning. Gengur betur næst, getum ekki alltaf unnið
Næsti seðill er snúinn venju samkvæmt, 3 leikir úr efstu deild og 10 leikir úr B deildinni. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Wolves - Aston Villa
15:00 Newcastle - WBA
17:30 Manchester United - Manchester City
20:00 Everton - Chelsea
NánarSíðasta helgi var snúin fyrir vestfirska tippara. Nokkrir öryggir leikir klikka og einungis tveir með 11 rétta, keppendur sem við erum ekki vön að sjá á toppnum. Sævar í bankanum og Gísli Jón með 11 rétta, Sævar þó með fleiri 10 og náði kr. 22.740 í vinningsfé, Gísli fékk kr. 13.470.
Á toppnum náðu Skúrverjar og HG menn 10 réttum á meðan Hampiðjan náði ekki nema 9 réttum.
Þetta þýðir að Skúrverjar sitja einir á toppnum en Hampiðjumenn einu stigi á eftir. Nú fer að styttast í haustleiknum og ekki nema 4 vikur eftir. Reglur leiksins eru þannig að 2 verstu vikurnar telja ekki þannig að heilmikið getur enn gerst.
Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér.
Stóri pottur náði einnig 11 réttum sem skilaði kr. 24.840 vinning. Náðum fyrir 1/3 af kostnaði ca, getum ekki alltaf unnið. Vorum reyndar bara með einn leik rangan en kerfið hélt því miður ekki.
Næsti seðill er snúinn venju samkvæmt, 3 leikir úr efstu deild og 10 leikir úr B deildinni. Næsta seðil má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Þessir leikir verða í beinni hjá Dóra:
12:30 Burnley - Everton
15:00 Manchester City - Fulham
17:30 West Ham - Manchester United
20:00 Chelsea - Leeds
Nánar