Eins og allir vita þá eru sumarmótin komin á fullt hjá yngri flokkum.
5. fl kvk eru nýkomnar frá Vestmannaeyjum hvar þær tóku þátt í TM mótinu og stóðu sig frábærlega.
Stúlkurnar voru valdnar prúðasta liðið og er hegðun þeirra innan sem utan vallar til mikillar fyrirmyndar.
Það er skammt stórra hökkva á milli hjá þeim og eiga þær leik á lau nk á heimavelli gegn KFR í Íslandsmótinu.
2.fl, 3.fl, 4.fl og 5.fl kk munu allir spila 2 leiki hver í Íslandsmótinu að heiman um helgina.
6. flokkur stúlkna fer á Króksmótið á Sauðárkróki.
3. og 4. flokkur stúlkna hafa svo verið á ferð og flugi síðustu misserin. 3.fl kvk fær frí um helgina en 4.fl kvk spilar 2 leiki á heimavelli gegn KFR í Íslandsmótinu.
7. flokkur drengja tekur svo þátt í Norðurálsmótinu á Akranesi.
Af þessu má sjá að sjö flokkar eru að spila um helgina hér og hvar um landið og er um að ræða eina viðburðarríkustu helgi ársins í starfi yngri flokka knattspyrnudeildar Vestra.
ÁFRAM VESTRI
Deila