Knattspyrnunámskeið Vestra verður fyrstu tvær vikurnar í júlí.
Námskeiðin sem eru fyrir öll börn í 6.-7. flokki.
Æft verður eftir æfinga og knattspyrnuáætlun knattspyrnudeildar Vestra.
Þjálfarar koma frá knattspyrnudeild Vestra og yfirþjálfari námskeiðsins verður Heiðar Birnir.
Um er að ræða tvö námskeið sem hvort um sig inniheldur fjóra námskeiðsdaga og 8 æfingar þ.e. tvær æfingar á dag.
Vistun er í boði frá kl. 08.30 alla dagana.
Verð er kr. 6.000,- per námskeið og skráning er hafin og fer hún fram í Sportabler
ÁFRAM VESTRI
Deila