Fréttir

Aðalfundur BÍ88

Knattspyrna | 16.08.2013

Aðalfundur Boltafélagsins verður haldinn mánudaginn 23 september kl. 20:00 á annarri hæð Háskólaseturs Vestfjarða.

Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf. Því til viðbótar verður tekin fyrir lagabreyting, sem fellst í að stofnað verði sérstakt barna- og unglingaráð innan félagsins.

Margir áhugasamir og dugmiklir einstaklingar hafa sýnt áhuga á að leggja sína krafta í það spennandi uppbygginarstarf sem fylgir félaginu.  Það eru spennandi tímar framundan þar sem unnið verður í að móta framtíðarsýn félagsins og vinna enn frekar í að auka það mikla gildi sem starfsemin hefur fyrir samfélagið.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins inn á hsv.is.

 

Allir velkomnir og eru velunnarar og áhugamenn um starfsemi félagsins hvattir til að mæta. Kaffi og meðlæti í boði.

 

Frumvarp til lagabreytingar er eftirfarandi:

Barna- og unglingaráð félagsins skal skipuð minnst 5 mönnum: formanni, gjaldkera, ritara, varaformanni og meðstjórnanda. Á aðalfundi skal kosið í stjórn sem hér segir: formann skal kjósa til eins árs í senn og skulu síðan kosnir tveir menn til tveggja ára í senn, þannig að kosnir séu tveir menn á hverju ári. Komi sú staða upp að fleiri sæti losni í stjórninni, skal fyrst kosið um tvo menn til tveggja ára og síðan skal kjósa einn eða tvo menn til eins árs. Síðan skal kjósa tvo varamenn til eins árs í senn, svo og einn endurskoðanda til eins árs, og einn til vara.

Þá skulu kosnir fulltrúar félagsins í nefndir, ráð og annað slíkt sem félagið hefur rétt á að skipa til.

Við allar kosningar heimilast uppástungur um menn, en fara skal fram leynileg kosning sé stungið upp á fleirum en einum til sama embættis.


Atkvæðisrétt öðlast félagar við 16 ára aldur.

Deila