Fréttir

Atlantic Seafood styrkir Vestra

Knattspyrna | 18.12.2020

Knattspyrnudeild Vestra og Atlantic Seafood skrifuðu nú í dag undir samstarfssamning, en með honum verður Atlantic Seafood eitt af flaggskipum okkar góða hóps styrktaraðila.

Það voru þeir Elvar Thor Alfreðsson fyrir hönd Atlantic og Ívar Pétursson fyrir hönd Vestra, sem undirrituðu samninginn í húsakynnum Atlantic í Hafnarfirðinum í dag.

„Við höfum mikla trú á Vestra og viljum vera einn af hornsteinum þess að þeir nái þeim markmiðum sem sett hafa verið fyrir komandi tímabil. Við eigum mikið og gott samstarf við vestfirskar útgerðir og má því segja að þetta sé okkar leið til að gefa til baka, en við erum mjög stoltir af góðu samstarfi við vestfirðinga“ – sögðu þeir Elvar Thor og og Gunnar Valur Sigurðsson, framkvæmdarstjóri Atlantic.

„það er frábært að fá jafn öflugt fyrirtæki og Atlantic inn í okkar frábæra hóp af bakhjörlum. Að finna fyrir trú á verkefninu er mikilvægt og fyllir okkur enn meiri eldmóð að gera betur en í fyrra“  er haft eftir stjórn Vestra, sem greinilega ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili.

Deila