Fréttir

BÍ/Bolungarvík úr leik í bikarnum

Knattspyrna | 02.08.2011 BÍ/Bolungarvík 1 - 4 KR
0-1 Baldur Sigurðsson ('37)
1-1 Gunnar Már Elíasson ('43)
1-2 Baldur Sigurðsson ('80)
1-3 Grétar Sigfinnur Sigurðarson ('83)
1-4 Gunnar Örn Jónsson ('91)

BÍ/Bolungarvík tók á móti KR í undanúrslitum bikarkeppni karla í fótbolta, Valitor-bikarsins, á Torfnesvelli á Ísafirði klukkan 16.00. KR sigraði 4:1 en staðan í hálfleik var 1:1 og raunar fram á 80. mínútu. KR mætir Þór frá Akureyri í úrslitaleiknum. Gunnar Már Elíasson skoraði okkar mark með þrumufleyg á 43. mínútu.

Fréttatími RÚV

Fréttatími Stöðvar 2
Deila