Fréttir

Heimsókn FH tókst feykivel

Knattspyrna | 12.04.2010 Við fengum góða heimsókn nú fyrir helgina, þá komu Jón Rúnar Helgason formaður knattspyrnudeildar FH, Heimir Guðjónsson þjálfari meistaraflokks FH, Ingvar Jónsson þjálfari 2. flokks FH og yfirþjálfari yngri flokka FH, Atli Guðnason og Matthías Vilhjálmsson leikmenn Íslandsmeistara FH til okkar. Jón Rúnar lagði áherslu á ytra starfið og uppbyggingu þess en hinir voru fyrst og fremst komnir með fótboltaleg sjónarmið að leiðarljósi og heimsótti í þeim tilgangi nokkra flokka félagsins eða 3.-5. flokka stráka og stelpna. Vakti heimsókn þeirra mikla eftirtekt hjá krökkunum og spennan var mikil.
Þeir félagar hófu heimsóknina samt á heimsókn í meistaraflokk karla þar sem þeir fylgdust með æfingu áður en þeir héldu í íþróttahúsið við Torfnes þar sem haldinn var fundur um knattspyrnumál og uppbyggingarstarf FH. Var fundurinn mjög vel sóttur og ljóst af umræðum sem þar spunnust að við Ísfirðingar getum lært heilmikið af Hafnfirðingum, bæði hvað uppbyggingu félagsins okkar varðar og starfsins, sem er ekkert nema þjónusta sem við reynum að veita eftir bestu getu. Fundurinn varð nokkuð langur enda mörg atriði sem velta þurfti vöngum yfir en ég býst við að allir hafi verið nokkru nær um kosti samstarfs sem þessa og hvers við getum vænst af FH, þ.e. heimsóknum þjálfara og leikmanna, ráðlegginga í uppbyggingarmálum, svo eitthvað sé nefnt.
Þá fóru Atli og Matthías (Matti Vill) á æfingar allra flokkanna og fengu krakkarnir að spyrja þá spjörunum úr eftir æfingarnar.  Krakkarnir eru orðnir vanir þessu og voru ekki feimnir, enda hafa heimsóknir Rakelar Hönnudóttur og Hólmfríðar Magnúsdóttur tekið úr þeim mesta feimnishrollinn. Fauk þar mörg spurningin um fótbolta og annað sem krakkarnir vildu vita um líferni knattspyrnumannsíns.
Voru þeir kumpánar, auk Heimis og Ingvars, sammála um að ástandið á flokkunum væri gott, flæði í æfingum með betra móti en það þýðir ekkert annað en það, að krakkarnir eru að gera æfingar sínar af þeirri hæfni sem krafist er af þeirra aldurshópum í greininni. Er það vel og mega krakkarnir alveg heyra að þeir eru að standa sig vel og vinna þeirra á æfingum er að skila sér. Áfram með góða starfið og vinnusemina og þá gengur allt betur! Deila