Miðvikudaginn 10.maí bauð meistaraflokkur áhugasömum í kynningarboð í Vallarhúsinu. Hugmyndin með boðinu var að hrista hópinn saman og í leiðinni auka og dýpka tengslin við stuðningsfólk og samfélagið. Er þetta í fyrsta sinn sem haldið er slíkt kvöld á vegum knattspyrnudeildar.
NánarMiðvikudaginn 10.maí býður knattspyrnudeildin öllum áhugasömum í Vallarhúsið á Torfnesi þar sem við kynnum til leiks leikmenn meistaraflokks karla í knattspyrnu fyrir komandi tímabil sem og þjálfaratríóið.
NánarKnattspyrnudeildir Breiðabliks og Vestra skrifuðu undir samstarfssamning í dag.
Samstarfið snýst um að að iðkendur hjá Vestra sem koma suður til lengri eða skemmri tíma geta sótt æfingar hjá hjá Breiðabliki í sínum flokkum.
NánarRafael Broetto, 32 ára gamall brasilískur markmaður, hefur gengið til liðs við Vestra.
NánarTil að halda úti góðu og öflugu íþróttastarfi er mikilvægt að vera með gott fólk með sér, öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að aðstoða við hin ýmsu verkefni sem til falla.
Knattspyrnudeild hefur nú ákveðið að stofna svo kallað knattspyrnuráð, en knattspyrnuráð er hópur sjálboðaliða úr öllum áttum sem eru tilbúnir að leggja hönd á plóg. Verkefnin eru eins misjöfn og þau eru mörg. Sem dæmi má nefna er gæsla við heimaleiki, aðstoð við að setja upp auglýsingaskilti að vori og taka þau niður að hausti, bakstur í sjoppu, tiltekt, viðhald, uppbygging og margt fleira. Verkefnin eru fjölmörg og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. .
Við hvetjum alla áhugasama að taka þátt í þessu með okkur, það er ekki skylda að mæta í hvert einasta verkefni, en mikilvægt að aðstoða þegar mögulegt er.
Þeir sjálfboðaliðar sem koma til starfa í knattspyrnuráði fá að launum ársmiða á heimaleiki knattspyrnudeildar Vestra og miða á lokahóf félagsins.
Áhugasömum er bent á að óska eftir aðgang í þennan hóp hér https://www.facebook.com/groups/597523871975385/ en þar munu allar upplýsingar koma fram varðandi þau verkefni sem þarf að sinna hverju sinni.
Gerum þetta saman, áfram Vestri !
NánarAníta Ólafsdóttir og Kristján Þór Kristjánsson gengur úr stjórn barna og unglingaráðs knattspyrnudeildar á aðalfundi deildarinnar í síðustu viku eftir um 15 ára starf.
Aníta og Kristján hafa unnið ötullt starf í mörg ár fyrir félagið og hafa verið félaginu algjörlega ómisandi síðustu ár. Það er mikill fengur fyrir félagið að hafa notið krafta þeirra og það svona lengi. Það er ekki sjálfgefið að fá svona öfluga sjálfboðaliða og hvað þá að þeir sitji svona lengi í stjórn.
Er þeim Anítu og Kristjáni þakkað innilega fyrir þeirra störf fyrir knattspyrnuhreyfinguna síðustu ár.
Formaður stjórnar lætur einnig sem af störfum sem formaður, en Jón Hálfdán Pétursson tók við sæti formanns af Tinnu Hrund Hlynsdóttur Hafberg. Kristján Þór er langt í frá hættur að starfa fyrir knattspyrnuna á svæðinu, en hann hefur tekið sæti formanns meistaraflokksráðs kvenna sem er í pípunum hér á svæðinu.
Stjórnir knattspyrnudeilda eru full skipaðar góðum sjálfboðaliðum, en fyrir það ber að þakka. Félögin ganga ekki án sjálfboðaliða.
Nánar
Að óskum Nicolaj ‘Niko’ Madsen hefur stjórn Vestra samþykkt óskir hans um að losna undan samning við félagið. Niko hefur verið að fást við persónuleg málefni sem gera það að verkum að hann mun ekki eiga heimagegnt vestur í sumar.
NánarIbrahima Baldé, senegalskur leikmaður, hefur gengið til liðs við Vestra.
NánarFrenchy fór í aðgerð og verður lengur frá en í fyrstu var talið
NánarAðalfundur knattspyrnudeildar Vestra verður haldinn þriðjudaginn 7.mars klukkan 20:00 á efri hæð Vallarhússins.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Nánar