Fréttir

Gabriel Adersteg gengur til liðs við Vestra

Körfubolti | 26.05.2020
Gabriel Adersteg í leik með Snæfelli á síðasta tímabili. Ljósmynd: Karfan.is
Gabriel Adersteg í leik með Snæfelli á síðasta tímabili. Ljósmynd: Karfan.is

Sænski framherjinn Gabriel Adersteg hefur skrifað undir samning við Vestra. Gabriel lék síðasta tímabil með Snæfelli í fyrstu deildinn en lék þar áður í Ítölsku C deildinni. Hann á einnig að baki feril í bandaríska háskólaboltanum og í heimlandinu m.a. með sænska U16 landsliðinu.

Gabriel er vinnusamur og fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum og er mikill liðsspilari. Hann leiddi ungt lið Snæfells síðastliðinn vetur og var stiga, og stoðsendinga hæsti leikmaður liðsins með 22.3 stig og 3,7 stoðsendingar auk þess að taka  6,6 fráköst með alls 19,5 framlagspunkta.

Það er mikill fengur að þessum öfluga leikmanni og Körfuknattleiksdeild Vestra býður Gabriel velkominn til leiks og hlakkar til samstarfsins.

Deila