Hjóalfélagið setti upp upphafsstaur við efri Múlann. Uppsetning upphaffstaura er hluti af öryggisverkefni sem tengist merkingu hjólaleiða.
Félagið fjarlægði einnig laust járnarusl sem var á svæðinu.
Nánar
Vinnan við hjólagarðinn hélt áfram á helginni með Sigga Jóns og Kristján Jóns í fararbroddi ásamt Heiðu Jóns. Upplýsingaskilti við hjólagarðinn fór upp og var Heimreiðin merkt með rauðmerktum stikum.
Þökkum sérstaklega Gunnari Bjarna og Birnu Jónasar við aðstoð á hönnun skiltisins. Eins þökkum við Addó fyrir fyrir að stýra smíðinu á grunninum.
Garðurinn í @harstadbikepark í Noregi er flottur undir norðurljósunum. Spurning hvort að útsýnið við Skutulsfjörð myndi ekki toppa þessa mynd.
Já drengleðin hélt áfram hjá fjóreykinu á helginni. Siggi, Kristján, Pétur og Heiða mættu gallvösk og í framkvæmdarhug á hjólaplanið.
Hjólaplanið er mjög blautt, enda mikið grunnvatn sem rennur niður úr Grænuhlíð og stoppar á planinu þar sem það kemst ekki í gegnum steinvegginn.
Helgin var nýtt í gata vegginn og reyna að koma einhverju vatni í gegnum vegginn. Á laugardeginum var grafin prufuhola, boruð tvö 18mm göt í veggin til að meta hvort ætti að fara...
NánarÞað var kraftmikill hópur sem felldi rörið í morgun með Pétur Hilmarson fremstan í flokki. Pétur logskar rörið og flutti það upp á efra planið. Klappliðið, Sigurður, Kristján og Heiða sýndu mikinn andlegan stuðning.
Rörið var áður nýtt til þess að dæla sandi upp á planið, það var ónothæft þar sem það var tekið í sundur við lagningu ljósleiðara fyrir nokkrum árum.
Hagalín og Kalli snyrtu skurðinn meðfram veggnum í dag. Svæðið er enn töluvert blautt en verður spennandi að sjá hvort að það þorni næstu daga. Það er lykilatriði í svona stórri framkvæmd að vinna grunnvinnuna vel. Næsta stóra skref er að fjarlægja rörið.
Vestri hjólreiðar hefur fengið Swissneska fyrirtækið Velosolution með sér í að hanna verkið. Fyrstu drög liggja yfir aðeins stærra landsvæði en til stóð í upphafi og þarf að vinna útfærsluna betur. Ef einhver hefur áhuga á að koma athugasemdum til stjórnar þá er hægt að senda línu á hjolreidar@vestri.is
Hjólreiðadeild Vestra hefur unnið hart að því síðustu ár að undirbúa hjólagarð fyrir alla stóra sem smáa...
Nánar